„Fordæmalaust og dapurt mál“

Sigurður Ingi Jóhannsson,samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður Framsóknarflokksins
Sigurður Ingi Jóhannsson,samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður Framsóknarflokksins Árni Sæberg

„Mér sýnist þetta vera fordæmalaust og dapurt mál í alla staði,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu og sveitastjórnarráðherra, þegar hann var inntur álits á máli skipverja á frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni. Eins og fram hefur komið smituðust 22 af 25 skipverja af Covid-19. Samkvæmt frásögn var skipverjum gert að vinna á meðan þeir voru veikir. 

Sigurður kynnti fyrir ríkisstjórninni á ríkisstjórnarfundi minnisblað um lagagrunn sjómannalaganna og þau ákvæði sem lúta að ábyrgð og ákvæðum er lúta að réttindum skipverja.

Hann segir að ríkisstjórnin leggi áherslu á ríkari samfélagslega ábyrgð atvinnulífsins og hafi unnið að reglugerðarbreytingum í þá átt á undanförnum árum.  „Hér er málið á skýrum lagagrunni og komið í farveg,“ segir Sigurður Ingi sem tjáir sig í ljósi þess ekki frekar um málið á meðan rannsókn stendur yfir. 

„Ástæða þess að ég fór með minnisblaðið fyrir ríkisstjórnina er til þess að upplýsa hana um lagagrunn sjómannalaga. En síðan getur komið fram við rannsókn málsins að þau falli undir almenn hegningarlög eða sóttvarnarlög,“ segir Sigurður Ingi. 

Málið er á herðum samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytisins sökum þess að öryggismál sjómanna heyra undir ráðuneytið. 

Spurður hvort ríkisstjórnin sé að huga að reglugerðarbreytingum í ljósi þess að ýmis álitamál geta komið upp í tengslum við veirufaraldurinn þá segir Sigurður Ingi svo ekki vera. „Þetta regluverk er ágætlega skýrt og ég vona svo sannarlega að þetta sé fordæmalaust mál,“ segir Sigurður Ingi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »