Áhöfnin á Tý kölluð út til að mæta þyrluleysi

Varðskipið Týr mun halda til hafs í kvöld til að …
Varðskipið Týr mun halda til hafs í kvöld til að tryggja ör­yggi á sjó í skugga þyrlu­leys­is vegna verk­falls flug­virkja Land­helg­is­gæsl­unn­ar. mbl.is/Árni Sæberg

Áhöfnin á varðskipinu Tý var kölluð út í morgun og mun skipið halda til sjós um kvöldmatarleyti í kvöld. Fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni að tilgangur útkallsins sé að hafa tvö skip á sjó svo hægt sé að tryggja betur öryggi til sjós „þar sem engin björgunarþyrla eða flugvél er tiltæk vegna verkfalls flugvirkja.“

Þá segir að varðskipið Þór er við eftirlit norður af landinu og til stendur að Týr sigli til Vestmannaeyja og verði til taks á suðvestanverðum Íslandsmiðum. „Um borð í hvoru varðskipi er 18 manna áhöfn sem er sérþjálfuð til björgunarstarfa. Gert er ráð fyrir að varðskipið Týr verði til taks á meðan skert viðbragð er úr lofti.“

Bent er á að um miðjan dag hafi verið rúmlega 200 skip og bátar í kerfum stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar, þar af 89 íslensk. „Afar brýnt þykir að auka viðbragðið á sjó vegna þeirrar stöðu sem uppi er og því verða tvö varðskip, Þór og Týr, til taks ef á þarf að halda næstu daga.“

Einnig er séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar í viðbragðsstöðu. „Varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar mun tryggja yfirsýn yfir staðsetningu allra erlendra ríkisfara við Ísland, bæði skipa og flugvéla, sem hugsanlegt væri að nýta við leit og björgun ef á þyrfti að halda.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 680 kg
Samtals 680 kg
24.7.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.038 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.046 kg
24.7.24 Kristinn ÞH 163 Handfæri
Þorskur 1.519 kg
Ufsi 47 kg
Samtals 1.566 kg
24.7.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 668 kg
Samtals 1.931 kg
24.7.24 Vonin NS 41 Handfæri
Ufsi 511 kg
Þorskur 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 566 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 680 kg
Samtals 680 kg
24.7.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.038 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.046 kg
24.7.24 Kristinn ÞH 163 Handfæri
Þorskur 1.519 kg
Ufsi 47 kg
Samtals 1.566 kg
24.7.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 668 kg
Samtals 1.931 kg
24.7.24 Vonin NS 41 Handfæri
Ufsi 511 kg
Þorskur 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 566 kg

Skoða allar landanir »