46 duflum dreift á 36 stöðum

Aðgerðin gekk vel enda ákjósanlegt veður suður af landinu í …
Aðgerðin gekk vel enda ákjósanlegt veður suður af landinu í síðastliðinni viku eftir langvarandi norðanáttir. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Landhelgisgæsla Íslands hefur undanfarin ár verið nokkrum háskólum í Bandaríkjunum sem og stofnunum á vegum háskólasamfélagsins innan handar við dreifingu á mælingaduflum, yfirborðssvifnökkvum og litlum ómönnuðum rannsóknarkafbátum á hafsvæðinu umhverfis Ísland.

Verkefnið kallast NISKINe (e. Near Inertial Shear and Kinetic Energy in the North Atlantic experiment) og felur m.a. í sér mælingar á áhrifum vinds á ölduhæð, öldustefnu og strauma og er áhersla lögð á þessar mælingar suður af Íslandi, að því er segir á vef Gæslunnar. 

Landhelgisgæslan hefur einnig komið að því að endurheimta hluta búnaðarins til baka sem í mörgum tilfellum hefur farið víða um í Norður-Atlantshafinu áður en rafhlöður tæmast og sendistyrkur dalar.  Ferðir varðskipanna og eftirlitsbáta Landhelgisgæslunnar hafa verið nýttar í þessum tilgangi ef tækifæri hefur gefist m.t.t. aðstæðna og verkefna.

Ljósmynd/Landhelgisgæslan


Umræddir háskólar og vísindastofnanir eru í samstarfi við aðra skóla víðs vegar um heiminn sem og hinar ýmsu stofnanir varðandi úrvinnslu og nýtingu vísindagagnanna, þar á meðal Hafrannsóknastofnun og Veðurstofu Íslands, segir enn fremur.

„Nýverið höfðu tengiliðir verkefnisins innan Hafrannsóknastofnunar og Veðurstofunnar samband við Landhelgisgæsluna fyrir hönd kollega sinna í Bandaríkjunum og spurðust fyrir um hvort mögulegt væri að dreifa 36 mælingaduflum í sérstakri röð djúpt suður af Vestmannaeyjum. Hittist þannig á að áætlað var að varðskipið Þór yrði við störf undan Suðurlandi í byrjun apríl. 

Duflunum var því í snarhasti komið um borð í skipið og þeim dreift í síðustu viku. Að auki var tveimur ómönnuðum rannsóknarkafbátum stýrt inn á svæðið þannig að hægt væri að taka þá um borð. Að endingu urðu duflin í heild 46 sem dreift var á 36 staði. Aðgerðin gekk vel enda ákjósanlegt veður suður af landinu í síðastliðinni viku eftir langvarandi norðanáttir,“ segir í frétt Gæslunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 637,25 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 396,55 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,63 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 633,84 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína
Steinbítur 1.366 kg
Ýsa 517 kg
Þorskur 86 kg
Hlýri 6 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 1.981 kg
24.7.24 Hilmir ST 1 Handfæri
Þorskur 660 kg
Ufsi 121 kg
Ýsa 98 kg
Samtals 879 kg
24.7.24 Sæbyr ST 25 Handfæri
Þorskur 1.161 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 1.164 kg
24.7.24 Margrét GK 33 Lína
Ýsa 4.567 kg
Þorskur 1.786 kg
Steinbítur 270 kg
Langa 7 kg
Hlýri 5 kg
Samtals 6.635 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 637,25 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 396,55 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,63 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 633,84 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína
Steinbítur 1.366 kg
Ýsa 517 kg
Þorskur 86 kg
Hlýri 6 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 1.981 kg
24.7.24 Hilmir ST 1 Handfæri
Þorskur 660 kg
Ufsi 121 kg
Ýsa 98 kg
Samtals 879 kg
24.7.24 Sæbyr ST 25 Handfæri
Þorskur 1.161 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 1.164 kg
24.7.24 Margrét GK 33 Lína
Ýsa 4.567 kg
Þorskur 1.786 kg
Steinbítur 270 kg
Langa 7 kg
Hlýri 5 kg
Samtals 6.635 kg

Skoða allar landanir »