Um 20% úr Orkusjóði í haftengda starfsemi

Vilhelm Þorsteinsson EA tengdist rafmagni er skipið kom til hafnar …
Vilhelm Þorsteinsson EA tengdist rafmagni er skipið kom til hafnar í Neskaupstað á dögunum. Landtengingin er eitt þeirra verkefna sem fékk styrk úr Orkusjóði. Ljósmynd/Síldarvinnslan

Alls fengu fyrirtæki er tengjast haftengdri starfsemi rúmar 97 milljónir úr Orkusjóði vegna verkefna er tengjast orkuskiptum. Um er að ræða níu fyrirtæki en aðeins tvö þeirra eru sjávarútvegsfyrirtæki. Þá eru tvö fyrirtæki í fiskeldi, eitt er afurðastöð og síðustu fjögur þjónusta sjávarútveg.

Mest hlaut Síldarvinnslan hf. sem fékk 19,5 milljónir króna vegna landtengingar uppsjávarskipa. Verkefnið felur í sér að uppsjávarskip sem liggja við bryggju í Norðfjarðarhöfn geta tengst rafmagni sem nýtist til að kæla afla, dæla honum á land ásamt annarri raforkunotkun um borð. Síldarvinnslan hefur kostað þróun búnaðarins og er áætlað að ef öll uppsjávarskip sem landa í Neskaupstað tengjast rafmagni geti sparast um 300 þúsund lítrar af olíu á ári.

mbl.is

Næstmest hlaut Sæplast ehf. sem skipti út olíu fyrir rafmagn í framleiðsluvél sinni og hlaut fyrirtækið 18,4 milljónir króna.

Samanlagt voru veittar 27 milljónir í rafvæðingu fóðurpramma hjá laxeldisfyrirtækjunum Háafelli ehf. á Vestfjörðum og Löxum fiskeldi ehf. á Austfjörðum.

100 krónur á hvern lítra

Í heild var sótt um 1.468 milljónir króna í styrk til Orkusjóðs en til úthlutunar skv. auglýsingu voru 320 milljónir. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og umhverfis- og auðlindaráuneytið fjármögnuðu þá 150 milljónir til viðbótar og var því hægt að úthluta 470 milljónum.

„Við úthlutun styrkja Orkusjóðs árið 2021 voru umsóknir metnar út frá því hvort þau stuðli að raunverulegum orkuskiptum og minnki notkun jarðefnaeldsneytis með skilvirkum og hagkvæmum hætti, helst í matvælaframleiðslu. [...] Athyglisvert er að um 100 kr. styrkur á hvern olíulítra sem notaður er árlega nægir í mörgum tilfellum til að skipta olíunotkun alfarið út fyrir vistvæna orku,“ segir í skýrslu stjórnar Orkusjóðs vegna úthlutunar ársins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.8.24 493,16 kr/kg
Þorskur, slægður 27.8.24 335,12 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.8.24 197,44 kr/kg
Ýsa, slægð 27.8.24 160,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.8.24 188,54 kr/kg
Ufsi, slægður 27.8.24 191,43 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 27.8.24 223,82 kr/kg
Litli karfi 26.8.24 32,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 27.8.24 247,64 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.8.24 Orion BA 34 Handfæri
Þorskur 442 kg
Karfi 90 kg
Ufsi 31 kg
Samtals 563 kg
28.8.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 181 kg
Samtals 181 kg
28.8.24 Öðlingur SU 191 Handfæri
Þorskur 4.416 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 4.440 kg
28.8.24 Brattanes NS 123 Handfæri
Ufsi 62 kg
Samtals 62 kg
28.8.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.955 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.981 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.8.24 493,16 kr/kg
Þorskur, slægður 27.8.24 335,12 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.8.24 197,44 kr/kg
Ýsa, slægð 27.8.24 160,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.8.24 188,54 kr/kg
Ufsi, slægður 27.8.24 191,43 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 27.8.24 223,82 kr/kg
Litli karfi 26.8.24 32,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 27.8.24 247,64 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.8.24 Orion BA 34 Handfæri
Þorskur 442 kg
Karfi 90 kg
Ufsi 31 kg
Samtals 563 kg
28.8.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 181 kg
Samtals 181 kg
28.8.24 Öðlingur SU 191 Handfæri
Þorskur 4.416 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 4.440 kg
28.8.24 Brattanes NS 123 Handfæri
Ufsi 62 kg
Samtals 62 kg
28.8.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.955 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.981 kg

Skoða allar landanir »