Ætla að minnka olíunotkun um 160 tonn

Stefnt er að því að koma upp landtengingu fyrir skip …
Stefnt er að því að koma upp landtengingu fyrir skip Eimskipa í Sundahöfn. Ljósmynd/Eimskip

Eimskip hefur undirritað samning við norska fyrirtækið Blueday Technology AS um hönnun og smíði á búnaði til að landtengja skip við rafmagn við Sundahöfn, en Efla mun hafa umsjón með verkinu, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Eimskipa. Þar segir að einnig hafi verið samið við kínverska fyrirtækið SaierNico um breytingu á rafstýringum um borð í Brúarfossi og Dettifossi.

Með tilkomu landtengingarinnar mun hávaðasöm ljósavél sem knýr rafmagn og nauðsynlegan búnað um borð heyra sögunni til og er áætlað að hægt verði að minnka olíunotkun um 160 tonn árlega.

Áfangi í orkuskiptum

„Um er að ræða mikilvægan áfanga í orkuskiptum við Sundahöfn en viljayfirlýsing var undirrituð á síðasta ári á milli umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Faxaflóahafna, Veitna, Reykjavíkurborgar og Eimskips um uppbyggingu og rekstur landtenginga fyrir skip í Sundahöfn,“ segir í tilkynningunni.

Vert er að minnast á að kranar Eimskips hafa þegar verið rafvæddir og kveðst fyrirtækið stefna að því að minnka losun gróðurhúsalofttegunda í starfsemi sinni um 40% fyrir 2030.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »