Minnka losun um 680 tonn með tengiltvinnskipi

Northern Skagerrak, sem er í eigu Northern Energy & Supply, …
Northern Skagerrak, sem er í eigu Northern Energy & Supply, mun breytast í tengiltvinnskip á næsta ári. Ljósmynd/Northern Energy & Supply

Hafnaryfirvöld í Gautaborg í Svíþjóð hafa gengið frá samningi við Northern Energy & Supply um að þjónustuskipinu Northern Skagerrak verði á fyrri hluta næsta árs breytt í tengiltvinnskip sem verður mestmegnis knúið rafmagni en mun einnig styðjast við vél sem gengur fyrir lífdísil.

Fram kemur í tilkynningu á vef Gautaborgarhafnar að áætlað sé að með breytingunum megi minnka árlega losun koltvísýrings um 680 tonn. Northern Skagerrak er 45,99 metra langt skip, 9,6 metra breitt og 499 brúttótonn.

Hlutverk skipsins er að dæla úrgangi úr skipum sem koma til Gautaborgar og færa til sérstakrar förgunar. Um er að ræða uppsafnað mengað vatn sem inniheldur blöndu af olíuleifum, hreinsi- og leysiefnum. Skipin skila affallsblöndunni til hafnar sem síðan er flutt í hreinsistöð þar sem olía og þungmálmsmengun eru skilin frá vatninu. Öllum höfnum í Svíþjóð er skylt að taka við úrgangi af þessum toga.

Northern Skagerrak sinnir förgunarverkefnum fyrir Gautaborgarhöfn.
Northern Skagerrak sinnir förgunarverkefnum fyrir Gautaborgarhöfn. Ljósmynd/Northern Energy & Supply

„Markmið okkar hjá hafnarstjórn Gautaborgar er að draga úr kolefnislosun í höfninni um 70% fyrir árið 2030. Northern Skagerrak mun þjóna um 6.000 skipum sem koma til hafnar á ári hverju og umbreytingin í tengiltvinn er mikilvægt skref í rétta átt,“ segir Erik Waller aðstoðarhafnarstjóri í tilkynningunni.

Engin tengiltvinnsip eru starfrækt hér á landi en Fiskeldi Austfjarða festi í byrjun árs kaup á tveimur fóðurprömmum sem eru búnir tengiltvinnvélum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »