Gæslan varar við borgarísjaka

Ísjakinn sem sást í dag.
Ísjakinn sem sást í dag. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Áhöfnin á varðskipinu Þór sigldi fram á myndarlegan borgarísjaka um 20 sjómílur norður af Selskeri á Húnaflóa um hádegisbil í dag. Áhöfn Þórs áætlar að ísjakinn sé um 250 metrar að lengd, 260 metrar að breidd og 15 metra hár.

Frá þessu greinir Landhelgisgæslan í tilkynningu.

Jakinn frá öðru sjónarhorni.
Jakinn frá öðru sjónarhorni. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

„Eins og sjá má á meðfylgjandi myndunum er jakinn V-laga og líklegt má telja að hann sé strandaður þar sem dýpi á svæðinu er um 80 metrar. Nokkuð óvanalegt er borgarísjakar séu á þessum slóðum á þessum árstíma. Landhelgisgæslan telur ástæðu til að vara sjófarendur við ísjakanum enda getur hann reynst varasamur, sérstaklega í myrkri,“ segir í tilkynningunni.

Jakinn á ratsjármynd Gæslunnar.
Jakinn á ratsjármynd Gæslunnar. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Mikilvægt sé að þeir sem eigi leið um svæðið séu meðvitaðir um staðsetningu jakans.

Þegar varðskipið Þór sigldi framhjá jakanum var hann á stað: 66°27,7N – 021°30,0V.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg
18.5.24 Hávella ÍS 426 Sjóstöng
Þorskur 265 kg
Samtals 265 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg
18.5.24 Hávella ÍS 426 Sjóstöng
Þorskur 265 kg
Samtals 265 kg

Skoða allar landanir »