Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra ætlar að funda með forstjóra Landhelgisgæslunnar vegna nýlegrar skýrslu Ríkisendurskoðunar þar sem olíukaup Gæslunnar í Færeyjum voru meðal annars gagnrýnd.
Í skýrslunni segir meðal annars: „Þeir aðilar sem þiggja rekstrarfé sitt úr ríkissjóði geta ekki vísað til þess að með því að komast hjá greiðslu opinberra gjalda sé stuðlað að rekstrarhagkvæmni. Siglingar Landhelgisgæslunnar í þessum tilgangi fela í sér sóun, óþarfa mengun og skerðingu á viðbragðsgetu varðskipa innan efnahagslögsögunnar."
„Ég er sannfærður um það að við verðum sammála um að taka þessum ábendingum vel og þeirri gagnrýni sem við fáum til að gera sterka og góða stofnun enn betri,“ sagði Jón að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun, spurður hvort hann ætlar að beita sér fyrir breytingum hvað varðar olíukaupin. „Þetta er ein af ábendingunum sem þar koma fram og ég vænti þess að við tökum fullt tillit til þess.“
Þyrluferðir ráðherra eða annarra með flugvélum, þyrlum eða skipum Gæslunnar í einkaerindum voru einnig harðlega gagnrýndar í skýrslunni. „Sú gagnrýni er góð og ég ítreka mikilvægi þess að um þetta gilti settar og strangar reglur,“ sagði Jón, spurður út í gagnrýnina.
„Það eru ákveðna reglur í gildi og við munum skoða hvort þær þurfi að fá einhvers konar yfirferð í tengslum við þessar athugasemdir Ríkisendurskoðunar,“ bætti hann við almennt um gagnrýnina sem kemur fram í skýrslunni.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 11.2.25 | 594,32 kr/kg |
Þorskur, slægður | 11.2.25 | 546,56 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 11.2.25 | 382,28 kr/kg |
Ýsa, slægð | 11.2.25 | 356,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 11.2.25 | 227,70 kr/kg |
Ufsi, slægður | 11.2.25 | 264,97 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Gullkarfi | 11.2.25 | 407,29 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
11.2.25 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 5.211 kg |
Ýsa | 469 kg |
Hlýri | 68 kg |
Karfi | 67 kg |
Steinbítur | 12 kg |
Ufsi | 7 kg |
Samtals | 5.834 kg |
11.2.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Ýsa | 4.444 kg |
Þorskur | 1.209 kg |
Hlýri | 89 kg |
Steinbítur | 75 kg |
Keila | 71 kg |
Langa | 16 kg |
Karfi | 12 kg |
Samtals | 5.916 kg |
11.2.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Langa | 1.878 kg |
Steinbítur | 313 kg |
Ufsi | 122 kg |
Ýsa | 21 kg |
Karfi | 2 kg |
Samtals | 2.336 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 11.2.25 | 594,32 kr/kg |
Þorskur, slægður | 11.2.25 | 546,56 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 11.2.25 | 382,28 kr/kg |
Ýsa, slægð | 11.2.25 | 356,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 11.2.25 | 227,70 kr/kg |
Ufsi, slægður | 11.2.25 | 264,97 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Gullkarfi | 11.2.25 | 407,29 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
11.2.25 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 5.211 kg |
Ýsa | 469 kg |
Hlýri | 68 kg |
Karfi | 67 kg |
Steinbítur | 12 kg |
Ufsi | 7 kg |
Samtals | 5.834 kg |
11.2.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Ýsa | 4.444 kg |
Þorskur | 1.209 kg |
Hlýri | 89 kg |
Steinbítur | 75 kg |
Keila | 71 kg |
Langa | 16 kg |
Karfi | 12 kg |
Samtals | 5.916 kg |
11.2.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Langa | 1.878 kg |
Steinbítur | 313 kg |
Ufsi | 122 kg |
Ýsa | 21 kg |
Karfi | 2 kg |
Samtals | 2.336 kg |