Kobbi Láka úr þjónustu eftir að hafa sokkið

Kobbi Láka hefur lokið þjónustu sinni fyrir Vestfirðinga en töluvert …
Kobbi Láka hefur lokið þjónustu sinni fyrir Vestfirðinga en töluvert tjón varð á bátnum er hann sökk ´Bolungarvíkurhöfn. Samsett mynd

Tjón á Kobba Láka, björgunarbáti Björgunarsveitarinnar Ernis á Bolungarvík,  í kjölfar óveðursins sem gekk yfir landið í febrúar var slíkt að ekki hefur reynst unnt að koma honum í þjónustu á ný. Hafin er því leit að nýjum björgunarbát.

Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu björgunarsveitarinnar.

Þann 8. febrúar tók báturinn að leka á meðan hann lá bundinn í Bolungarvíkurhöfn og á skömmum tíma sökk hann. „Mjög fljótt var kominn mannskapur á staðinn með dælur og byrjað að dæla úr bátnum en auk félaga úr sveitinni komu félagar úr slökkviliðinu og aðstoðuðu einnig. Þegar búið var að dæla úr bátnum var hann hífður á land og í kjölfarið afhentur tryggingafélagi okkar til að meta tjónið,“ segir í tilkynningunni.

Björgunarbáturinn Kobbi Láka hefur verið í þjónustu Ernis frá 2019 þegar báturinn var keyptur af björgunarsveitinni Ársæl í Reykjavík. Frá Þeim tíma hefur báturinn verið í fjölda útkalla.

Báturin var smíðaður 1998 hjá Holen Mekaniske Verksted í Noregi og yfirfarinn 2005. Lengd hans er 9,65 metrar og breiddin 3,6 metrar en djúprista er 0,65 metrar. Um borð voru tvær Yanmar 338 kílóvatta vélar með jet skrúfubúnaði, drægni um 120 sjómílur. Þá er Kobbi Láka útbúinn sjó- og brunadælum sem dæla 400 lítrum á mínútu, dráttartógi og öflugum siglingatækjum.

Þá segir í tilkynningunni að Kobbi Láka mun ekki sinna verkefnum og er því hafin leit að nýjum bát í samstarfi við skrifstofu Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »