Notuðu villandi fullyrðingar um „vistvænt sjóeldi“

Á umbúðum Norðanfisks var fullyrt að um vistvænt sjóeldi væri …
Á umbúðum Norðanfisks var fullyrt að um vistvænt sjóeldi væri að ræða.

Neytendastofa hefur bannað Norðanfiski og Fisherman ehf. að nota fullyrðingar um „vistvænt sjóeldi“ í markaðsetningu sinni þar sem um er að ræða villandi fullyrðingar. Neytendasamtökin vekja athygli á úrskurðinum á heimasíðu sinni.

Forsaga málsins er sú að samtökunum barst ábending frá árvökulum félagsmanni um villandi merkingum fyrirtækjanna.

Í framhaldinu sendu Neytendasamtökin kvörtun til Neytendastofu og fóru fram á að stofnunin tæki afstöðu til þess hvort orðanotkun Norðanfisks á „vistvænu sjóeldi“ á umbúðum væri villandi í skilningi laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

Einnig var send kvörtun vegna fullyrðinga Fisherman ehf sem segir framleiðslu sína vistvæna, umhverfisvæna og sjálfbæra.

Fyrirtækin gátu ekki sýnt fram á að fullyrðingar um vistvænt og sjálfbært laxeldi ættu rétt. Fullyrðingarnar eru því villandi og bæði fyrirtækin brutu gegn lögum með notkun þeirra.

„Ólíðandi refhvörf“ 

„Neytendasamtökin telja einsýnt að orðnotkunin „vistvænt sjóeldi“ sé afar villandi og í raun ólíðandi refhvörf. Þannig er sjókvíaeldi beinlínis flokkað sem mengandi iðnaður á vef Umhverfisstofnunar enda fer skólpið sem verður til við framleiðsluna beint í sjóinn. Norska umhverfisstofnunin hefur metið mengunina af hverju tonni í sjókví á við skólp frá 16 manneskjum. Laxar eru t.d. með leyfi fyrir 16.000 tonnum í Reyðarfirði, sem framleiðir þannig skólp á við 256.000 manns. Það getur ekki talist vistvænt,“ segir á vef Neytendasamtakanna.

„Erfðablöndun villtra stofna er að sama skapi afleiðing af sjókvíaeldi. Hún hefur verið staðfest hér rétt eins og í öllum löndum þar sem sjókvíaeldi er stundað. Hér hefur Hafrannsóknarstofnun gefið út „áhættumat erfðablöndunar“. Þar er miðað við að allt að 4% af laxi í ám geti komið úr eldi. Það er í raun sturluð tala, einn af hverjum tuttugu löxum. Það getur ekki talist vistvænt,“ segir þar jafnframt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 392,73 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 306,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 207,51 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Sigrún GK 97 Grásleppunet
Grásleppa 1.491 kg
Þorskur 132 kg
Rauðmagi 13 kg
Samtals 1.636 kg
26.4.24 Magnús Jón ÓF 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.223 kg
Þorskur 215 kg
Ufsi 51 kg
Ýsa 38 kg
Samtals 1.527 kg
26.4.24 Lundey SK 3 Grásleppunet
Grásleppa 680 kg
Þorskur 161 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 856 kg
26.4.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 1.393 kg
Þorskur 97 kg
Samtals 1.490 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 392,73 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 306,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 207,51 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Sigrún GK 97 Grásleppunet
Grásleppa 1.491 kg
Þorskur 132 kg
Rauðmagi 13 kg
Samtals 1.636 kg
26.4.24 Magnús Jón ÓF 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.223 kg
Þorskur 215 kg
Ufsi 51 kg
Ýsa 38 kg
Samtals 1.527 kg
26.4.24 Lundey SK 3 Grásleppunet
Grásleppa 680 kg
Þorskur 161 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 856 kg
26.4.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 1.393 kg
Þorskur 97 kg
Samtals 1.490 kg

Skoða allar landanir »