Afgreiddu 27 brottkastsmál á síðasta ári

Fiskistofa afgreiddi 27 brottkastsmál á síðasta ári. Níu voru sviptir …
Fiskistofa afgreiddi 27 brottkastsmál á síðasta ári. Níu voru sviptir leyfi til veiða frá einni viku upp í átta. mbl.is/Árni Sæberg

Á árinu 2022 lauk Fiskistofa meðferð 27 brottkastsmála með ákvörðun um viðurlög, þar af átján áminningar og níu veiðileyfissviptingar, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Fiskistofu.

Þar segir að að tvö skip hafi verið svipt veiðileyfi í atvinnuskyni í viku og fimm skip hafi verið svipt leyfi í tvær vikur. Brot tveggja skipa mat Fiskistofa meiriháttar og var eitt þeirra svipt veiðileyfi í fjórar vikur og hitt í átta vikur, en bæði málin voru kærð til lögreglu.

„Í öllum tilvikum höfðu veiðieftirlitsmenn Fiskistofu eftirlit með veiðum skipanna með drónum. Brotamálum vegna brottkasts hefur fjölgað mjög eftir að drónar voru teknir í notkun hjá Fiskistofu árið 2021,“ segir í tilkynningunni.

Þá er vakin athygli á því að ákvarðanir um sviptingu veiðileyfa séu birtar á vef stofnunarinnar til að stuðla að gagnsæi í störfum stofnunarinnar og tryggja fyrirsjáanleika fyrir þá sem starfa í greininni. Auk þess er birtingin sögð vera til þess fallin að auka varnaðaráhrif ákvarðana Fiskistofu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,76 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,55 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng
Þorskur 237 kg
Samtals 237 kg
18.5.24 Þórshani BA 411 Sjóstöng
Þorskur 42 kg
Samtals 42 kg
18.5.24 Toppskarfur ÍS 417 Sjóstöng
Þorskur 83 kg
Samtals 83 kg
18.5.24 Lómur ÍS 410 Sjóstöng
Þorskur 476 kg
Samtals 476 kg
18.5.24 Stuttnefja BA 408 Sjóstöng
Þorskur 140 kg
Samtals 140 kg
17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,76 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,55 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng
Þorskur 237 kg
Samtals 237 kg
18.5.24 Þórshani BA 411 Sjóstöng
Þorskur 42 kg
Samtals 42 kg
18.5.24 Toppskarfur ÍS 417 Sjóstöng
Þorskur 83 kg
Samtals 83 kg
18.5.24 Lómur ÍS 410 Sjóstöng
Þorskur 476 kg
Samtals 476 kg
18.5.24 Stuttnefja BA 408 Sjóstöng
Þorskur 140 kg
Samtals 140 kg
17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg

Skoða allar landanir »