Stjórn LS skorar á ráðherra

Arthúr Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda og Örn Pálsson framkvæmdastjóri sambandsins.
Arthúr Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda og Örn Pálsson framkvæmdastjóri sambandsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn Landssambands smábátaeigenda skorar á matvælaráðherra að endurskoða ákvörðun sína er varðar beiðni sambandsins um auknar veiðiheimildir til strandveiða.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landssambandi smábátaeigenda.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hafnaði beiðni sambandsins um að hækka aflaviðmið um 4.000 tonn.

Áhuginn mikill fyrir strandveiðum

Stjórnin vísar meðal annars til mikilvægis strandveiða og hins mikla áhuga sem strandveiðum er sýndur. Þetta eigi jafnt við sjómenn, fiskkaupendur, vinnsluaðila og eftirspurn frá mörkuðum. Strandveiðar geta á þann hátt brúað það tímabil sem stóru fyrirtækin loka vegna sumarleyfa fram að næsta fiskveiðiári, segir í tilkynningunni.

Þá segir einnig í tilkynningunni að stjórnin vilji benda á þá staðreynd að strandveiðimenn séu ævinlega látnir mæta afgangi þegar kemur að úthlutun veiðiheimilda. Það sé nöturlegt í ljósi þess að strandveiðikerfið sé eini glugginn í fiskveiðikerfinu þar sem einstaklingum gefst færi á því að reyna fyrir sér við fiskveiðar í atvinnuskyni, án þess að þurfa að kaupa eða leigja veiðiheimildir á verðum sem fæstir ráða við og eru í þokkabót ófáanlegar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 8.5.24 424,37 kr/kg
Þorskur, slægður 8.5.24 517,93 kr/kg
Ýsa, óslægð 8.5.24 212,67 kr/kg
Ýsa, slægð 8.5.24 183,64 kr/kg
Ufsi, óslægður 8.5.24 148,39 kr/kg
Ufsi, slægður 8.5.24 132,97 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 8.5.24 208,75 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.5.24 Unginn AK 58 Handfæri
Þorskur 624 kg
Samtals 624 kg
8.5.24 Dadda HF 43 Handfæri
Þorskur 653 kg
Samtals 653 kg
8.5.24 Þytur ST 14 Handfæri
Þorskur 744 kg
Samtals 744 kg
8.5.24 Enok NK 17 Handfæri
Þorskur 521 kg
Samtals 521 kg
8.5.24 Día HF 14 Handfæri
Þorskur 759 kg
Ufsi 51 kg
Samtals 810 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 8.5.24 424,37 kr/kg
Þorskur, slægður 8.5.24 517,93 kr/kg
Ýsa, óslægð 8.5.24 212,67 kr/kg
Ýsa, slægð 8.5.24 183,64 kr/kg
Ufsi, óslægður 8.5.24 148,39 kr/kg
Ufsi, slægður 8.5.24 132,97 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 8.5.24 208,75 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.5.24 Unginn AK 58 Handfæri
Þorskur 624 kg
Samtals 624 kg
8.5.24 Dadda HF 43 Handfæri
Þorskur 653 kg
Samtals 653 kg
8.5.24 Þytur ST 14 Handfæri
Þorskur 744 kg
Samtals 744 kg
8.5.24 Enok NK 17 Handfæri
Þorskur 521 kg
Samtals 521 kg
8.5.24 Día HF 14 Handfæri
Þorskur 759 kg
Ufsi 51 kg
Samtals 810 kg

Skoða allar landanir »