Eldi skilaði 75% útflutningsverðmæta

Sjókvíar laxeldisfyrirtækja í Norður-Þrændalögum í Noregi. Eldislax skilaði Norðmönnum 58,5 …
Sjókvíar laxeldisfyrirtækja í Norður-Þrændalögum í Noregi. Eldislax skilaði Norðmönnum 58,5 milljörðum norskra króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Ljósmynd/Fylkestinget i Nord-Trøndelag

Norskir framleiðendur sjávarafurða seldu til erlendra kaupenda vörur fyrir 82,3 milljarða norskra króna á fyrsta árshelmingi, um er að ræða jafnvirði 1.079 milljarða íslenskra króna. Þar af fengust 61,2 milljarðar norskra króna eða tæp 75% útflutningsverðmætanna fyrir eldisafurðir.

Myndin er hins vegar önnur þegar litið er til magns og nam heildarmagn útfluttra sjávarafurða á fyrsta árshelmingi 1,31 milljón tonn. Skiluðu veiðar 760 þúsund tonnum og eldi 550 þúsund tonnum.

Þetta er meðal þess sem má lesa í samantekt norska útflutningsráðsins, Norges Sjømatråd.

Laxinn í yfirburðastöðu

Þar segir að útflutningsverðmæti norskra sjávarafurða hafi aukist um 12,3 milljarða frá fyrsta árshelmingi 2022 og sé aukningin því 18%. Hátt afurðaverð hafi vissuelga haft áhrif á þessa niðurstöðu en gera má ráð fyrir að átta milljarðar af aukningunni megi rekja til veikara gengi norsku krónunnar. Það er því aðeins um 35% af aukningunni sem má rekja beint til hærra afurðaverðs.

Á fyrstu sex mánuðum ársins 2023 skilaði eldislax 71,1% af útflutningsverðmætunum eða 58,5 milljörðum norskra króna. Þorskur skilaði aðeins 8,8% eða 7,27 milljörðum. Í magni var lax 523,8 þúsund tonn af heildarútflutningi sem gerir 39,9% af heildarútflutningi en flutt voru út 101 þúsund tonn af þorski.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 413,20 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 502,40 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 327,00 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 261,10 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 142,79 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 152,49 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 214,52 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 2.439 kg
Samtals 2.439 kg
16.5.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 748 kg
Samtals 748 kg
16.5.24 Emilía AK 57 Handfæri
Þorskur 779 kg
Ufsi 20 kg
Samtals 799 kg
16.5.24 Teista AK 16 Handfæri
Þorskur 705 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 708 kg
16.5.24 Mardís AK 11 Handfæri
Þorskur 744 kg
Ufsi 101 kg
Karfi 4 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 852 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 413,20 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 502,40 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 327,00 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 261,10 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 142,79 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 152,49 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 214,52 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 2.439 kg
Samtals 2.439 kg
16.5.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 748 kg
Samtals 748 kg
16.5.24 Emilía AK 57 Handfæri
Þorskur 779 kg
Ufsi 20 kg
Samtals 799 kg
16.5.24 Teista AK 16 Handfæri
Þorskur 705 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 708 kg
16.5.24 Mardís AK 11 Handfæri
Þorskur 744 kg
Ufsi 101 kg
Karfi 4 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 852 kg

Skoða allar landanir »