Fleiri en 60 mögulegir strokulaxar til viðbótar

Patreksfjörður Mikið er um að vera við sjóeldið. Starfsmenn á …
Patreksfjörður Mikið er um að vera við sjóeldið. Starfsmenn á fjölda vinnubáta eru að störfum. Bæði fyrirtækin hafa leyfi í firðinum mbl.is/Ágúst Ingi

Yfir 60 mögulegir strokulaxar hafa borist Hafrannsóknastofnun til greiningar frá veiðimönnum og Fiskistofu frá síðustu niðurstöðum 8. september og hafa yfir 20 þeirra borist stofnuninni í gær og í dag.

Öllum sýnum hefur verið komið í erfðagreiningar hjá Matvælastofnun utan eins sýnis sem barst útibúi Hafrannsóknastofnunar á Akureyri úr meintum eldislaxi úr Fnjóská, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Hafrannsóknastofnunar.

Staðir þar sem staðfestir eða mögulegir strokulaxar hafa veiðst og …
Staðir þar sem staðfestir eða mögulegir strokulaxar hafa veiðst og stöðu greininga þeirra. Kort/Hafrannsóknastofnun

Síðast var greint frá niðurstöðum greiningar 8. september á vef Matvælastofnunar og var þá búið að greina 27 strokulaxa. Í öllum tilvikum var um strokulaxa úr kví Arctic Sea Farm í Patreksfirði að ræða.

Fengust þessir 27 laxar í Patreksfirði (6), Örlygshöfn (2), Sunndalsá (6), Mjólká (1), Laugardalsá (1), Ísafjarðará (1), Selá í Ísafjarðardjúpi (2), Miðfjarðará (1), Hópinu (1), Víðidalsá (1), Vatnsdalsá (3), Laxá í Dölum (1) og Staðarhólsá/Hvolsá (1).

Þakka veiðimönnum

„Í kjölfar frétta um göt á eldiskví og göngur strokulaxa í ár hvatti Hafrannsóknastofnun stangveiðimenn til að koma löxum með möguleg eldiseinkenni í greiningu hjá stofnuninni. Hafrannsóknastofnun þakkar öllum þeim sem hafa komið með fiska í greiningu og látið vitað af þeim sem eru á leiðinni,“ segir í tilkynningu Hafrannsóknatsofnunar.

Þar er jafnframt bent á að áfram sé hægt að skila inn mögulegum strokulöxum til Hafrannsóknastofnunar eða Fiskistofu. Tilgangur þess að að sliku áfram er að svo hægt verði að „fá sem besta mynd af umfangi eldislaxa í ám og dreifingu þeirra.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »