Segja hreinsunarbúnað mengunarvald

Mörg flutningaskip nota vothreinsibúnað sem losar úrgang í sjó.
Mörg flutningaskip nota vothreinsibúnað sem losar úrgang í sjó. mbl.is/Hari

Útblásturshreinsibúnaður skipa sem brenna svartolíu, svokallaður vothreinsibúnaður (e. scrubber), sem nýttur er í þeim tilgangi að koma í veg fyrir loftmengun, veldur verulegri mengun í höfnum í Evrópu. Má gera ráð fyrir að meira en 90% af skaðlegum efnum, þar á meðal þrávirkum PAH-efnum, megi rekja til losunar hreinsunarbúnaðarins, að því er fram kemur í umfjöllun Morgunblaðsins.

Þetta er niðurstaða vísindamanna við Chalmers-tækniháskólans í Gautaborg í Svíþjóð.

„Þessi rannsókn sýnir að það er umtalsvert mengunarálag af málmum og PAH frá skipum í höfnum og að stór hluti mengunarinnar dreifist í nærliggjandi umhverfi. Þess vegna er þörf á heildrænu mati á rekstri skipa til að gera sér fulla grein fyrir áhrifum á lífríki hafsins,“ segir í grein vísindamannanna sem birt var fyrr á árinu í vísindatímaritinu Marine Pollution Bulletin.

„Niðurstöðurnar tala sínu máli. Strangar reglur um losun hreinsivatns geta skipt sköpum fyrir lífríki sjávar,“ er haft eftir Önnu Lunde Hermannsson, doktorsnema við véla- og siglingafræðideild Chalmers, á vef háskólans.

Í grein vísindamannanna kemur fram að mengunin safnist mest upp í höfnum þar sem lítil hreyfing er á sjónum, þar sem lítill munur er á flóði og fjöru, eins og einkennir sérstaklega Eystrasaltið. Það takmarkar þó ekki umhverfisáhrifin að sögn Lunde Hermannsson.

Umfjöllunina í heild má lesa í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Steinbítur 256 kg
Þorskur 256 kg
Ýsa 13 kg
Ufsi 11 kg
Samtals 536 kg
18.5.24 Lundi ÍS 406 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg
18.5.24 Már BA 406 Sjóstöng
Þorskur 498 kg
Samtals 498 kg
18.5.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng
Þorskur 407 kg
Samtals 407 kg
18.5.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng
Þorskur 237 kg
Samtals 237 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Steinbítur 256 kg
Þorskur 256 kg
Ýsa 13 kg
Ufsi 11 kg
Samtals 536 kg
18.5.24 Lundi ÍS 406 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg
18.5.24 Már BA 406 Sjóstöng
Þorskur 498 kg
Samtals 498 kg
18.5.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng
Þorskur 407 kg
Samtals 407 kg
18.5.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng
Þorskur 237 kg
Samtals 237 kg

Skoða allar landanir »