Rétt hugarfar hafi átt áhrif á heimsvísu

Sigurður Einarsson var opinn fyrir nýjungum og tók vel á …
Sigurður Einarsson var opinn fyrir nýjungum og tók vel á móti frumkvöðlum sem vildu kynna nýjar lausnir sem síðar hafa skilað sjávarútveginum hér á alandi og víðar gífurlegum árangri í aukinni verðmætasköpun og aukinni sjálfbærni. Ljósmynd/Ísfélag hf.

Bókin „100% Fish – How smart seafood companies make better use of resources“ inniheldur fjölda frásagna um hvernig nýsköpun sem eykur nýtingu og verðmæti sjávarafurða – og minnkar þannig kolefnisspor hverrar framleiddrar vöru – hefur komið til. Ekki síst er lýst hversu mikilvægt sé að sjávarútvegurinn sjálfur sé opinn fyrir nýjungum til að hugmyndir verði að veruleika.

Fjöldi frásagnanna eru frá Íslandi og sagði höfundurinn, Þór Sigfússon stofnandi Sjávarklasans, nýverið í samtali við Morgunblaðið bókina vera hvatningu til alþjóðlega sjávarútvegsins um að gera betur þegar kemur að fullnýtingu sjávarafurða og til að stuðst verði við íslenska aðferðarfræði til að ná hámarksárangri í fullnýtingu og sjálfbærni.

„Segja má að bókin sé eins og handbók fyrir þá sem vilja taka þessi skref. Um leið er hún það sem mér hefur alltaf þótt vanta, sem er samansafn af sögum af fyrirtækjum víða um heim – þar af mörg á Íslandi – sem hafa verið einstakir frumkvöðlar í útgerð og nýsköpun. Þetta hefur vonandi þau áhrif að það hvetur aðra til dáða,“ sagði Þór.

Fyrirmyndar hugarfar Sigurðar Einarssonar

Í bókinni er sagt frá því hvernig hugarfar Sigurðar Einarssonar, sem var eigandi og forstjóri Ísfélags Vestmannaeyja til hann lést árið 2000, leiddi til umfangsmikilla umbóta í sjávarútvegi og matvælaiðnaði hér á landi og mun víðar.

Meðal frásagna af Sigurði í bókinni er fjallað að samstarf ÍSfélagsins og ThorICE. Þar segir: (í þýðingu blaðamanns): „Þorsteinn Ingi Víglundsson, stofnandi sprotatæknifyrirtækisins ThorIce, kynnti Sigurði Einarssyni nýjar hugmyndir sem hann hafði þróað til að kæla fiskafla. Hann festi hitamæli við endann á langri stöng og dýfði honum djúpt í einn tankinn um borð í einu af skipi Sigurðar. Það kom töluvert á óvart hversu hátt hitastig  fisksins var og hversu mikið af ísnum sem bætt var í tankinn hafði sest á botninn þar sem hann hafði lítil áhrif. Allan þennan tíma hafði hluti aflans verið geymdur við of hátt hitastig og verðmæti hans minnkaði hratt.

Þór Sigfússon telur mikilvægt að sjávarútvegurinn um heim allan tileinki …
Þór Sigfússon telur mikilvægt að sjávarútvegurinn um heim allan tileinki sér hugarfar Sigurðar Einarssonar til að minnka sóun í greinina. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sigurður hafði orð á sér fyrir að taka vel á móti frumkvöðlum sem færðu honum nýjar hugmyndir og í þetta skipti olli hann ekki vonbrigðum. Hann vildi gera breytingar þótt engin dæmi væru um að fyrirtæki hefðu áður nýtt sér þessa tækni. Frumkvöðulinn taldi að um leið og einhver hefði tekið skrefið til að vera fyrstur, þá væri auðveldara að selja þessa tækni til annarra.

Þetta umhverfisvæna kerfi hefur skilað sér í umtalsverðum endurbótum á kælingu fisks, á sjó og í landi og er þetta orðin alþjóðlega viðurkennd vara. Allir enda sigurvegarar, ekki síst umhverfið.

Þannig byrjaði ThorIce og hefur átt sér stað umbylting í matvælakælingu í heiminum. ThorIce var nýlega tilnefnd til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs. Markmiðið með lausnum félagsins er að ná hraðari kælingu og orkusparnaði, en jafnframt að bæta gæði aflans.“

Hvernig Helgi Hjálmarsson tók stökkið

Einnig er í bókinni „100% Fish“ sagt frá því hvernig Valka, sem keypt var af Marel, varð til. Þar segir: „Verkfræðingurinn Helgi Hjálmarsson verkfræðingur, stofnandi tæknifyrirtækisins Völku – sem nú er hluti af Marel – var með hugmynd að nýrri leið til að hanna vinnslulínur sem myndi gera kleift að meðhöndla aflann betur og verða grænni. Til þess að þetta yrði að veruleika þurfti hann fjármagn og fór til útgerðar- og vinnslufyrirtækisins Brim (þá HB Granda) til að útskýra hvað hann hafði í huga.

Eftir ítarlega kynningu á nýju uppsetningunni og eftir að hafa svarað mjög mörgum spurningum var fyrirtækið áhugasamt. Þetta fékk fljúgandi start sem kom öllum til góða. Þetta eins manns fyrirtæki sem fór til Brims fyrir tuttugu árum hefur síðan vaxið hratt, með um 100 starfsmenn á Íslandi og í Noregi. Tæknirisinn Marel hefur nýlega keypt Völku. Hjá Marel starfa um 6.000 manns um allan heim.“

Helgi Hjálmarsson stofnandi Völku tók fyrir nokkrum árum við nýsköpunarverðlaunum …
Helgi Hjálmarsson stofnandi Völku tók fyrir nokkrum árum við nýsköpunarverðlaunum Creditinfo. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.12.24 534,99 kr/kg
Þorskur, slægður 20.12.24 714,42 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.12.24 303,74 kr/kg
Ýsa, slægð 20.12.24 187,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 20.12.24 10,95 kr/kg
Ufsi, slægður 20.12.24 112,85 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 20.12.24 67,60 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.12.24 Kristján HF 100 Lína
Karfi 261 kg
Þorskur 203 kg
Keila 107 kg
Ýsa 37 kg
Samtals 608 kg
21.12.24 Benni ST 5 Landbeitt lína
Þorskur 11.697 kg
Ýsa 99 kg
Steinbítur 45 kg
Keila 4 kg
Samtals 11.845 kg
21.12.24 Björg EA 7 Botnvarpa
Þorskur 103.876 kg
Ýsa 944 kg
Samtals 104.820 kg
20.12.24 Guðmundur í Nesi RE 13 Botnvarpa
Karfi 189.310 kg
Þorskur 103.686 kg
Grálúða 54.139 kg
Gulllax 9.379 kg
Blálanga 7.603 kg
Ufsi 2.610 kg
Hlýri 1.608 kg
Steinbítur 1.339 kg
Ýsa 605 kg
Langa 334 kg
Arnarfjarðarskel 207 kg
Keila 76 kg
Kolmunni 26 kg
Samtals 370.922 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.12.24 534,99 kr/kg
Þorskur, slægður 20.12.24 714,42 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.12.24 303,74 kr/kg
Ýsa, slægð 20.12.24 187,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 20.12.24 10,95 kr/kg
Ufsi, slægður 20.12.24 112,85 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 20.12.24 67,60 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.12.24 Kristján HF 100 Lína
Karfi 261 kg
Þorskur 203 kg
Keila 107 kg
Ýsa 37 kg
Samtals 608 kg
21.12.24 Benni ST 5 Landbeitt lína
Þorskur 11.697 kg
Ýsa 99 kg
Steinbítur 45 kg
Keila 4 kg
Samtals 11.845 kg
21.12.24 Björg EA 7 Botnvarpa
Þorskur 103.876 kg
Ýsa 944 kg
Samtals 104.820 kg
20.12.24 Guðmundur í Nesi RE 13 Botnvarpa
Karfi 189.310 kg
Þorskur 103.686 kg
Grálúða 54.139 kg
Gulllax 9.379 kg
Blálanga 7.603 kg
Ufsi 2.610 kg
Hlýri 1.608 kg
Steinbítur 1.339 kg
Ýsa 605 kg
Langa 334 kg
Arnarfjarðarskel 207 kg
Keila 76 kg
Kolmunni 26 kg
Samtals 370.922 kg

Skoða allar landanir »

Loka