Fiskurinn drapst vegna viðhalds í tengivirki

Fátt bendir til þess að eldi á gullinrafa hefjist á …
Fátt bendir til þess að eldi á gullinrafa hefjist á ný í bráð.

Enginn gullinrafi var framleiddur hér á landi á síðasta ári þrátt fyrir háleit áform þess efnis. Árið á undan var fyrsta sinn sem tókst að framleiða gullinrafa í eldi hér á landi og skilaði eldi Stolt Sea Fram tveimur tonnum af fiski í sláturstærð. Allur fiskur drapst hins vegar þegar afhendingu heitavatns stöðvaðist vegna viðhalds LAndsnets í tengvirki við HS Orku undir lok þess árs.

„Gullinrafinn, sem Stolt Sea Farm flutti inn í fyrsta sinn sem smáseiði í júlí 2021, kom í fyrsta sinn inn í slátrun 2022. Allt leit nokkuð vel út með þessa eldistilraun, en því miður varð endasleppt með eldið eftir að Landsnet urðu að komast í vinnu við tengivirkið sem er við HS Orku og fór þar með allur hiti af eldisstöðinni og gullinrafinn drapst í kjölfarið,“ segir Gísli Jónsson, sérgreinadýralæknir fiskisjúkdóma hjá Matvælastofnun.

„Stolt Sea Farm vissi auðvitað af þessari vinnu, en það bjóst enginn við því að fiskurinn væri svona viðkvæmur fyrir því að hitinn færi niður fyrir 10 til 12 gráður. Gullinrafinn er hraðvaxta hlýsjávartegund (þarf 21 til 23 gráður) og er m.a. mjög verðmætur sem hráefni í sushi. Enn er óvíst með framhaldið, en enginn nýr innflutningur smáseiða hefur átt sér stað síðan þetta kom upp á,“ útskýrir Gísli.

Upphaflega var stefnt að því að koma framleiðslu á gullinrafa í 30 tonn á ári.

Uppfært klukkan 15:40: Gísli Jónsson hefur leiðrétt frásögn sína og mátti rekja dauða fiskanna til vinnu Landsnets en ekki HS Orku eins og upphaflega var sagt frá í fréttinni. Fréttin hefur verið uppfærð með tilliti til þessara nýju upplýsinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »