Ráðleggja áframhaldandi humarveiðibann

Það eru fleiri ár síðan álíka humarafli sást í afurðastöðvum …
Það eru fleiri ár síðan álíka humarafli sást í afurðastöðvum á Íslandi. mbl.is/Sigurður Bogi

Hafrannsóknastofnun leggur til að humarveiðar verði bannaðar árin 2024 og 2025, að því er segir í ráðgjöf stofnunarinnar sem birt var í dag. Þá leggur stofnunin jafnframt til að áfram verði bannað að veiða með botnvörpu á afmörkuðum svæðum í Breiðamerkurdjúpi, Hornafjarðardjúpi og Lónsdjúpi til verndar humri.

Humarveiðar hafa verið bannaðar frá árinu 2022 vegna slakrar stöðu humarstofnsins og telur Hafrannsóknastofnun stofnstærðina vera undir varúðarmörkum.

Á síðasta ári tilkynnti stofnunin að vísbending væri um að humarstofninn hefði tekið að vaxa þar sem talning humarhola sýndi að fjöldi þeirra hafði tvöfaldast frá árinu 2021. Humarinn vex þó hægt og mun því taka nokkurn tíma áður en stofninn sé nógu stæðilegur til að réttlæta veiðar.

Tvísýnt þrátt fyrir aukningu

„Aukning humarhola getur stafað af tvennu. Annars vegar er talið að humarholur séu greinanlegar frá því að dýrin eru um 17 mm á skjaldarlengd, sem samsvarar um þriggja ára humri, en í humarvörpu sést hann yfirleitt ekki fyrr en um 4–5 ára (25–34 mm á skjaldarlengd). Hins vegar að þegar álag á veiðislóð er lítið þá séu humarholur, sem ekki eru í ábúð, greinanlegri í lengri tíma og getur það valdið skekkju á mati á heildarfjölda humars,“ segir í ráðgjafarskjali Hafrannsóknastofnunar.

Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um hámarksafla í humri hefur dregist saman á hverju fiskveiðiári frá fiskveiðiárinu 2009/2010, en þá var ráðgjöfin 2.200 tonn og nam humarafli íslenskra báta 2.456 tonn það fiskveiðiár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.4.24 441,55 kr/kg
Þorskur, slægður 28.4.24 575,91 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.4.24 268,56 kr/kg
Ýsa, slægð 28.4.24 185,76 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.4.24 157,63 kr/kg
Ufsi, slægður 28.4.24 185,80 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 28.4.24 175,44 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 6.882 kg
Þorskur 284 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 7.213 kg
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.4.24 441,55 kr/kg
Þorskur, slægður 28.4.24 575,91 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.4.24 268,56 kr/kg
Ýsa, slægð 28.4.24 185,76 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.4.24 157,63 kr/kg
Ufsi, slægður 28.4.24 185,80 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 28.4.24 175,44 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 6.882 kg
Þorskur 284 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 7.213 kg
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »