LHG fylgist með hafísnum

Það var þó nokkur hafís sem mætti Rifsnesi á heimleið …
Það var þó nokkur hafís sem mætti Rifsnesi á heimleið í gær. Gæslan segist fylgjast með hafísnum og mun þyrlusveit kanna útbreiðslu hans á morgun. Ljósmynd/Vigfús Markússon

Land­helg­is­gæsl­an kveðst í svari við fyr­ir­spurn 200 mílna hafa fylgst með haf­ís sem rek­ur vest­ur af land­inu og er reiknað með að þyrla á veg­um stofn­un­ar­inn­ar fari í könn­un­ar­flug á morg­un.

Ekki hef­ur verið hægt að fljúga yfir með flug­vél þar sem unnið er að viðhaldi á TF-SIF á Möltu.

Greint var frá því fyrr í dag að Rifs­nes SH-44 hefði á leið í land verið um­kringt haf­ís mun sunn­ar en sást á haf­ískorti Veður­stofu Íslands í gær.

Sjófar­end­ur til­kynna um ís­inn

„Land­helg­is­gæsl­an hef­ur und­an­farn­ar vik­ur fylgst vel með um­rædd­um haf­ís, bæði með gervi­tungla­mynd­um og einnig farið í eft­ir­lits­flug á þyrl­um yfir svæðið. Þá hef­ur stjórn­stöð Land­helg­is­gæsl­unn­ar fylgst vel með legu haf­íss­ins og gefið út sigl­ingaviðvar­an­ir og send­ir út á Navtex til sjófar­enda upp­lýs­ing­ar um staðsetn­ingu ein­stakra borga­rís­jaka og haf­íss. Einnig hafa sjófar­end­ur verið dug­leg­ir að til­kynna um legu íss­ins,“ seg­ir í svari stofn­un­ar­inn­ar.

Í fyr­ir­spurn 200 mílna var spurt hvort til stæði að fljúga yfir hafsvæðið vest­ur af land­inu til að meta út­breiðslu haf­íss.

„Verið er að leggja loka­hönd á viðhald TF-SIFJAR á Möltu og gert er ráð fyr­ir að vél­in verði kom­in til lands­ins í des­em­ber og geti þá ann­ast eft­ir­lit í lög­sög­unni sem mun styðja við aðrar ein­ing­ar sem Land­helg­is­gæsl­an hef­ur til eft­ir­lits. Þyrlu­sveit Land­helg­is­gæsl­unn­ar mun fara í ís­flug á morg­un,“ seg­ir í svar­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.3.25 338,00 kr/kg
Þorskur, slægður 17.3.25 553,11 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.3.25 319,91 kr/kg
Ýsa, slægð 17.3.25 251,12 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.3.25 192,70 kr/kg
Ufsi, slægður 17.3.25 249,33 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 17.3.25 172,95 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.3.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 5.252 kg
Ýsa 565 kg
Þorskur 166 kg
Skarkoli 59 kg
Hlýri 27 kg
Samtals 6.069 kg
17.3.25 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 2.482 kg
Ýsa 402 kg
Steinbítur 360 kg
Samtals 3.244 kg
17.3.25 Fálkatindur NS 99 Grásleppunet
Þorskur 1.062 kg
Grásleppa 904 kg
Skarkoli 38 kg
Keila 6 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 2.013 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.3.25 338,00 kr/kg
Þorskur, slægður 17.3.25 553,11 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.3.25 319,91 kr/kg
Ýsa, slægð 17.3.25 251,12 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.3.25 192,70 kr/kg
Ufsi, slægður 17.3.25 249,33 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 17.3.25 172,95 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.3.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 5.252 kg
Ýsa 565 kg
Þorskur 166 kg
Skarkoli 59 kg
Hlýri 27 kg
Samtals 6.069 kg
17.3.25 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 2.482 kg
Ýsa 402 kg
Steinbítur 360 kg
Samtals 3.244 kg
17.3.25 Fálkatindur NS 99 Grásleppunet
Þorskur 1.062 kg
Grásleppa 904 kg
Skarkoli 38 kg
Keila 6 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 2.013 kg

Skoða allar landanir »