Felldi niður rannsókn á AF í annað sinn

Rannsókn á mögulegu lögbroti í tengslum við það er 3.500 …
Rannsókn á mögulegu lögbroti í tengslum við það er 3.500 laxar struku úr sjókví í Patreksfirði hefur verið felld niður í annað sinn. mbl.is/Ágúst Ingi

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum felldi fyrr í þessum mánuði niður rannsókn á því hvort lögbrot leiddi til þess að eldislaxar sluppu úr kvíum fiskeldisfélagsins Arctic Fish í Patreksfirði ágúst 2023. Ákvörðunin var tekin með vísan til 145. greinar í lögum um meðferð sakamála sem bendir til þess að embættið telji gögn málsins ekki nægileg eða líkleg til þess að leiða til sakfellingar.

Þetta kemur fram í umfjöllun Bæjarins Besta.

Þar er fullyrt að Stein Ove Tveiten, forstjóri Arctic Fish, hafi verið til rannsóknar, nánar til tekið hvort hann bæri refsiábyrgð á því að fiskur slapp úr eldiskvínni með því að vanrækja að til staðar væri nauðsynlegur umbúnaður við fiskeldið.

Fjöldi laxa sluppu

Greint var frá því í ágúst 2023 að tvö göt hefðu fundist á sjókví númer átta hjá Arctic Seafarm, dótturfélagi Arctic Fish, í Kvígindisdal í Patreksfirði. Í kvínni voru 72.522 fiskar og er talið að um 3.500 laxar hafir strokið.

Gripið var til umfangsmikilla aðgerða til að endurheimta fiskinn og voru meðal annars kallaðir út kafarar frá Noregi til að elta strokulaxana uppi í ám. Fundust eldislaxar í ám víða um land.

Í kjölfar atviksins fór Matvælastofnun fram á opinbera rannsókn á hugsanlegum lögbrotum Arctic Fish á lögum um fiskeldi.

September 2023 upplýsti Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum, að kæra hefði verið lögð fram og að málið væri til meðferðar hjá embættinu. Í desember komst hins vegar embættið að þeirri niðurstöðu að ekki væri grundvöllur til að halda málinu áfram.

Ríkissaksóknara barst í kjölfarið 27 kærur vegna ákvörðunar lögreglustjóra um að fella málið niður, meðal annars frá Matvælastofnun.

Það var síðan í apríl á síðasta ári sem ríkissaksóknari felldi úr gildi ákvörðun lögreglustjórans og gerði honum að rannsaka málið, en sem fyrr segir hefur lögreglustjórinn á Vestfjörðum nú fellt málið niður á ný.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.1.25 612,42 kr/kg
Þorskur, slægður 21.1.25 682,02 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.1.25 406,34 kr/kg
Ýsa, slægð 21.1.25 302,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.1.25 261,00 kr/kg
Ufsi, slægður 21.1.25 303,02 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 21.1.25 328,12 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.1.25 Kristján HF 100 Lína
Þorskur 7.579 kg
Ýsa 3.346 kg
Samtals 10.925 kg
20.1.25 Fjølnir GK 757 Lína
Þorskur 7.098 kg
Ýsa 2.880 kg
Langa 582 kg
Samtals 10.560 kg
20.1.25 Fjóla SH 7 Plógur
Ígulker Bf B 1.020 kg
Samtals 1.020 kg
20.1.25 Bárður SH 81 Þorskfisknet
Þorskur 14.633 kg
Samtals 14.633 kg
20.1.25 Bergur VE 44 Botnvarpa
Þorskur 39.967 kg
Ýsa 11.514 kg
Ufsi 4.916 kg
Karfi 3.517 kg
Samtals 59.914 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.1.25 612,42 kr/kg
Þorskur, slægður 21.1.25 682,02 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.1.25 406,34 kr/kg
Ýsa, slægð 21.1.25 302,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.1.25 261,00 kr/kg
Ufsi, slægður 21.1.25 303,02 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 21.1.25 328,12 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.1.25 Kristján HF 100 Lína
Þorskur 7.579 kg
Ýsa 3.346 kg
Samtals 10.925 kg
20.1.25 Fjølnir GK 757 Lína
Þorskur 7.098 kg
Ýsa 2.880 kg
Langa 582 kg
Samtals 10.560 kg
20.1.25 Fjóla SH 7 Plógur
Ígulker Bf B 1.020 kg
Samtals 1.020 kg
20.1.25 Bárður SH 81 Þorskfisknet
Þorskur 14.633 kg
Samtals 14.633 kg
20.1.25 Bergur VE 44 Botnvarpa
Þorskur 39.967 kg
Ýsa 11.514 kg
Ufsi 4.916 kg
Karfi 3.517 kg
Samtals 59.914 kg

Skoða allar landanir »