Kia EV6 fær góða dóma frá Top Gear

Kia EV6.
Kia EV6. Ljósmynd/Kia

Kia EV6 rafbíllinn hefur verið valinn „Crossover“ ársins hjá bílatímaritinu heimsfræga Top Gear. Kia EV6 hefur fengið mjög góðar viðtökur síðan hann kom á markað fyrir stuttu og er þetta enn ein viðurkenningin sem bíllinn fær.

Þetta segir í fréttatilkynningu frá bílaumboðinu Öskju, sem fer með umboð fyrir Kia á Íslandi.

Í fréttatilkynningunni segir einnig að Kia EV6 sé þróaður samkvæmt nýrri hönnunarheimspeki Kia sem einblínir á rafbíla framleiðandans. Hönnunin er djörf og framsækin í takt við þær spennandi nýjungar sem rafbílar kalla fram að mati Tom Ford aðstoðarritstjóra Top Gear.

„Með hinum nýja EV6 hefur Kia farið alla leið og búið til hreinan rafbíl sem er leiðandi í sínum flokki með spennandi hönnun, afar góða aksturseiginleika og framúrskarandi drægni. Bíllinn er einnig rúmgóður, með fínan búnað og vel byggður. Hann hefur allt það besta sem rafbíll á að hafa. Hann er hljóðlátur, hnökralaus og aflmikill," sagði Tom Ford, þegar verðlaunin voru afhent á dögunum.

Kia EV6 dregur allt að 528 km samkvæmt WLTP staðli. EV6 er í boði bæði afturhjól- og fjórhjóladrifinn.

mbl.is