Leik- og söngkonan Unnur Eggertsdóttir er orðin móðir en hún eignaðist dóttur með unnusta sínum Travis. Unnur greindi frá komu dóttur sinnar á Instgram en nýbökuðu foreldrarnir búa bæði Bandaríkjunum og á Íslandi.
„Hún er komin,“ skrifaði Unnur við mynd af sér og dóttur sinni á Instgram. „Og hjörtun okkar eru gjörsamlega að springa.“
Barnavefur mbl.is óskar Unni og Travis til hamingju með stúlkuna.