Ragga Hólm og Elma eiga von á barni

Ragnhildur Jónsdóttir og Elma Valgerður Sveinbjörnsdóttir eiga von á sínu …
Ragnhildur Jónsdóttir og Elma Valgerður Sveinbjörnsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni saman. Skjáskot/Instagram

Tónlistarkonan og plötusnúðurinn Ragnhildur Jónsdóttir, betur þekkt sem Ragga Hólm, og kærasta hennar Elma Valgerður Sveinbjörnsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni saman. 

Ragga og Elma tilkynntu gleðifregnirnar í sameiginlegri færslu á Instagram þar sem þær sögðu frá aðdraganda þungunarinnar á einlægan máta. 

„13 times the charm sagði einhver. Það eru 4 ár síðan þetta ferli hófst. Tveimur eggheimtum, einni aðgerð og þrettán uppsetningum seinna tókst þetta loksins. Þessi draumur var orðinn mjög fjarstæðukenndur og eru þetta óraunverulegustu fréttir sem við getum fært, en það er loksins komið að okkur.

París tekur komandi hlutverki mjög alvarlega og ætlar að passa vel upp á nýja fjölskyldumeðliminn. Sjáumst í haust litla kríli,“ skrifuðu þær við skemmtilega mynd af kisunni París og sónarmynd. 

Fjölskylduvefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju!

View this post on Instagram

A post shared by Ragga Holm (@raggaholm)



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka