Afmælisóskin var sú að pabbi fengi að gista

TikTok-myndband Max Areeg hefur náð miklum vinsældum.
TikTok-myndband Max Areeg hefur náð miklum vinsældum. Samsett mynd

TikTok-myndband er sýnir foreldra undirbúa afmæli sonar síns hefur náð gífurlega miklum vinsældum á samfélagsmiðlinum síðastliðna daga.

Myndbandið kemur frá Max Areeg og sýnir hvernig parið blæs upp blöðrur, hengir upp skreytingar og endar þar að auki á léttum koddaslag. Það sem er einstakt við myndbandið og hegðun parsins er það að þau eru að ganga í gegnum hjónaskilnað.

Hláturinn og gleðin sem þau deila saman er kannski ekki það algengasta sem sést þegar par er að ganga í gegnum skilnað en getur vonandi reynst öðrum gott fordæmi um það sem hægt sé að deila að loknu hjónabandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert