Lög um bann við TikTok undirrituð í dag

Joe Biden mun undirrita lögin í dag.
Joe Biden mun undirrita lögin í dag. AFP/Oliver Douliery

Bandaríska öldungadeildin samþykkti í nótt frumvarp sem þvingar kínverska eigendur sam­fé­lags­miðilsins TikTok að losa sig við kín­verska eig­end­ur sína ell­egar eiga yfir höfði sér bann í Banda­ríkj­un­um. Bandaríkjaforseti mun undirrita frumvarpið í dag sem mun gera það að lögum.

Bandarískir og vestrænir embættismenn hafa löngum varað við því að TikTok safni of mikið af gögnum um notendur og að kínversk stjórnvöld hafi greiðan aðgang að þeim gögnum. Þá hafa sumir einnig sakað kínversk stjórnvöld um að dreifa áróðri á samfélagsmiðlinum. Kínversk stjórnvöld og TikTok hafna þeim ásökunum.

Joe Biden Bandaríkjaforseti mun undirrita lögin í dag en þau þvinga ByteDance, eiganda TikTok, til að selja samfélagsmiðilinn á innan við ári ellegar muni forritin App store og Google play store ekki veita notendum aðgang að TikTok.

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna.
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna. AFP/Jim Watson

Samþykktu hernaðaraðstoð einnig

Í nótt samþykkti öldungadeildin fjögur frumvörp sem var vafið saman í einn hjálparpakka. Í megindráttum snerist sá pakki um um­fangs­mik­inn hernaðarstuðning fyr­ir Úkraínu, Ísra­el og Taív­an en einnig var þar að finna umrætt frumvarp um bann við TikTok.

Joe Biden hefur sagt að hann muni undirrita þau lög í dag.

Fulltrúadeildin hafði samþykkt frumvarp um bann við TikTok fyrir tveimur mánuðum en öldungadeildin hafði ekki tekið það upp. Þegar fulltrúadeildin samþykkti hjálparpakkann fyrir fjórum dögum létu þeir TikTok-frumvarpið fylgja þeim pakka svo að öldungadeildin þyrfti að samþykkja öll frumvörpin í heild sinni, sem öldungadeildin gerði svo í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert