Farþegaþotu breytt í partívél

Hægt verður að halda heljarinnar veislur í vélinni.
Hægt verður að halda heljarinnar veislur í vélinni. Skjáskot/Instagram

Negus 747 farþegaþota breska flugfélagsins British Airways mun senn fá nýtt hlutverk sem partívél á Cotswold flugvellinum á Bretlandi. Einkarekni flugvöllurinn keypti vélina í október árið 2020 og hefur nú eytt rúmlega 14 mánuðum í að gera vélina upp. 

Vélin sem umræðir bættist við flota British Airways í febrúar árið 1994 og flaug sitt síðasta farþegaflug 6. apríl á síðasta ári. 

Suzanne Harvey er framkvæmdastjóri Cotswold flugvallar og er mjög stolt á breytingunum sem þau hafa gert á vélinni. „Það er búið að taka langan tíma að gera hana örugga fyrir almenning, því þessar flugvélar eru hannaðar til þess að vera í loftinu. Þannig það eru allskonar öryggisráðstafanir sem mæta ekki öryggiskröfum fyrir viðburði á jörðinni. Þannig það þarf að fjarlægja mikið,“ sagði Harvey í viðtali við CNN Travel

Vélin var í flota British Airways en hún flaug sitt …
Vélin var í flota British Airways en hún flaug sitt síðasta flug 6. apríl 2020. Skjáskot/Instagram

Það hefur kostað félagið um hálfa milljón punda eða um 85 milljónir króna að gera vélina upp. Tæpur helmingur fór í að steypa nýjan pall undir vélina og um fimmtungur fór í rafmagnsvinnu. Þá hefur verkefnið tekið mun lengri tíma en ráð var gert fyrir, en þar spilar meðal annars heimsfaraldurinn inn í. 

Harvey sér fyrir sér að fjölmargir viðburðir verði haldnir í vélinni á komandi árum og eru þau með leyfi til að halda brúðkaup þar. Á döfinni eru hin ýmsu partí, meðal annars fyrir sjónvarpsþátt. 

Verkefnið hefur tekið rúma 14 mánuði.
Verkefnið hefur tekið rúma 14 mánuði. Skjáskot/Instagram

„Eina vandamálið sem við höfum ekki enn fundið lausn við eru klósettin. Við höfum ekki náð að láta þau virka,“ segir Harvey og bendir á að klósett í flugvélum séu hönnuð til þess að nota í hærri loftþrýstingi þegar vélin er í loftinu. 

„Við vonumst til að negla það vandamál á næstu sex mánuðum eða svo. En eins og er erum við með mjög fín klósett fyrir utan,“ sagði Harvey. 

View this post on Instagram

A post shared by Negus (@negus747)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert