Hlaðvarpsstjarna gekk í það heilaga í Mexíkó

Alexandra Cooper og Matt Kaplan gengu í hjónaband þann 6. …
Alexandra Cooper og Matt Kaplan gengu í hjónaband þann 6. apríl síðastliðinn. Samsett mynd

Hlaðvarpsstjarnan Alexandra Cooper og kvikmyndaframleiðandinn Matt Kaplan gengu í það heilaga við glæsilega athöfn á ströndinni í Mexíkó þann 6. apríl síðastliðinn. 

Cooper hefur slegið í gegn með hlaðvarpsþáttum sínum Call Her Daddy þar sem hún hefur tekið viðtöl við stjörnur á borð við Jane Fonda, Gwyneth Paltrow, Hailey Bieber, Miley Cyrus, John Mayer og Paris Hilton.

Í rúmlega tvær vikur hélt Cooper brúðkaupinu leyndu en tilkynnti loksins gleðifregnirnar fyrr í vikunni á Instagram-síðu sinni. „Þetta er erfiðasta leyndarmál sem ég hef nokkurn tímann þurft að þaga yfir. En í dag fáið þið að vita það,“ skrifaði hún. 

Hjónin fóru í ítarlegt viðtal hjá tískutímaritinu Vogue þar sem þau sögðu frá brúðkaupinu frá a til ö. Veisluhöldin hófust þann 4. apríl og stóðu yfir heila helgi, en Cooper og Kaplan buðu aðeins sínum nánustu í brúðkaupið. Þau ákváðu að halfa það á Riviera Maya í Mexíkó þar sem þau vildu að gestirnir myndu upplifa brúðkaupið eins og að vera í fríi. 

Vildu hafa brúðkaupið afslappað

„Við vorum ekki að eltast við formlegt brúðkaup. Við vildum að þetta væri afslappað og ekta fyrir okkur og staðsetninguna, þannig allt frá skreytingum til veisluhalda var mjög afslappað,“ sagði Kaplan, en hann skipulagði brúðkaupið að mestu leyti. 

Cooper klæddist glæsilegum hönnunarfötum yfir brúðkaupshelgina, en á fyrsta kvöldið var hún í setti eftir Danielle Frankel sem var hálf-gegnsætt með útsaumuðum perlum. Við settið var hún svo í satínhælaskóm frá Jimmy Choo og með 18-karata antík gullskart. 

Reyndist vera draumakjóllinn

Kvöldið eftir var æfingakvöldverður haldinn á ströndinni, en þar klæddist Cooper kjól úr línu Donna Karen frá árinu 2011. Á brúðkaupsdaginn sjálfan var Cooper svo í glæsilegum sérsaumuðum Danielle Frankel silkikjól og sérsniðnum Jimmy Choo-skóm. 

„Kjóllinn reyndist sannarlega vera draumakjóllinn minn. Mér fannst ég ver svo klassísk og flott í honum. Ég upplifði sjálfsöryggi og fannst ég vera kynþokkafull en á sama tíma glæsileg og tímalaus,“ sagði hún um kjólinn. Að athöfn lokinni var haldið í veisluna þar sem Cooper skipti yfir í „vintage“ Alexander McQueen kjól og Jimmy Choo-hælaskó. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert