Árni og Sylvia syngja með íslenskum börnum

Hvað er skemmtilegra en að syngja og dansa saman fyrir framan sjónvarpið? Það er einmitt þess vegna sem Árni Beinteinn og Sylvia Erla Melsted tóku sig til og bjuggu til íslensk barnaefni. Bestu lög barnanna heitir þátturinn sem sýndur er í Sjónvarpi Símans Premium. Þar syngja þau Árni Beinteinn og Sylvia Erla með söngelskum börnum. 

„Þetta er verkefni sem verður alltaf skemmtilegt. Það er svo ótrúlega gaman að vinna með ungum og hæfileikaríkum krökkum. Er eitthvað skemmtilegra en að syngja og dansa?“ segir Sylvia Erla Melsted þáttastjórnandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert