Með giftingarhringinn þrátt fyrir skilnaðarorðróm

Meryl Streep er margverðlaunuð leikkona.
Meryl Streep er margverðlaunuð leikkona. AFP

Óskarsverðlaunaleikkonan Meryl Streep var meðal gesta í áttræðisafmæli stórsöngkonunnar Joni Mitchell í Los Angeles nú á dögunum.

Leikkonan, sem sótti veisluna ásamt elsta barni sínu og einkasyni, Henry Wolfe, var mynduð með giftingarhringinn á baugfingri, en Streep er sögð skilin við eiginmann sinn til 45 ára, myndhöggvarann Don Gummer.

Streep og Wolfe voru í eðal félagsskap, en nokkrar af stærstu stjörnum Hollywood-elítunnar voru mættar til að fagna afmæli Mitchell á Smoke House veitingahúsinu í Burbank í Kaliforníu. Leikkonurnar Goldie Hawn og Anjelica Huston voru meðal gesta og einnig söngkonan Cyndi Lauper.

Streep og Gummer gengu í hjónaband árið 1978 og eiga fjögur uppkomin börn og tvö barnabörn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert