Spilaði á trommur í fæðingarherberginu

Hann getur vart verið án tromma.
Hann getur vart verið án tromma. AFP

Tónlistarmaðurinn Travis Barker orsakaði smávegis fjaðrafok í netheimum nýverið. Hann birti myndskeið af sér á TikTok að tromma í takt við hjartslátt ófædds barns síns í fæðingarherberginu skömmu áður en sonur hans og Kourtney Kardashian kom í heiminn. 

Barker, sem er trommuleikari hljómsveitarinnar Blink-182, fékk ekki hlýjustu viðtökur frá netverjum í athugasemdarkerfinu fyrir frumlegheitin. 

„Þetta væri alls ekki pirrandi svona í fæðingu,“ skrifaði einn fylgjandi á meðan annar pennaði: „Hverjum dettur í hug að drösla trommu og kjuðum upp á spítalaherbergi.“

@travisbarker

Practicing to my babies heartbeat 🥁

♬ original sound - Travis Barker

Sonur Barker og Kardashian, Rocky 13, kom í heiminn um síðustu helgi og er hann fyrsta barn þeirra hjóna. Fyr­ir á Kar­dashi­an þrjú börn með fyrr­ver­andi kær­asta sín­um Scott Disick, þau Reign, Ma­son og Penelope, Þá á Bar­ker son­inn Landon, dótt­ur­ina Ala­bama og stjúp­dótt­ur­ina Atiana De La Hoya með fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni Shönnu Moakler.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert