Garðar og Fanney gáfu syninum nafn

Garðar Gunnlaugsson og Fanney Sandra Albertsdóttir gáfu syni sínum nafn …
Garðar Gunnlaugsson og Fanney Sandra Albertsdóttir gáfu syni sínum nafn um helgina.

Knatt­spyrnumaður­inn Garðar Gunn­laugs­son og Fann­ey Sandra Al­berts­dótt­ir, förðun­ar­fræðing­ur og einkaþjálf­ari, gáfu syni sínum nafn um helgina. Drengurinn kom í heiminn í nóvember síðastliðnum og er annað barn Garðars og Fanneyjar saman, en fyrir á Garðar fjögur börn úr fyrri samböndum. 

Drengurinn fékk nafnið Adrían Nóel Bergmann Garðarsson, en hjónin tilkynntu nafnið í sameiginlegri færslu á Instagram. Með færslunni birtu þau fallegar myndir af fjölskyldunni frá helginni. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju með nafnið!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert