Missti vatnið en um leið minnt á Seinfeld-hlutverk

Julia Louis-Dreyfus á tvö börn.
Julia Louis-Dreyfus á tvö börn. AFP/MARK DAVIS

Gamanleikkonan Julia Louis-Dreyfus segir það ekki alltaf tekið út með sældinni að vera heimfræg leikkona. Hún var til dæmis minnt á eitt frægasta hlutverk sitt þegar hún var að fæða eldri son sinn. 

„Ég var að fæða og þegar ég var í fæðingu þá var sett mælitæki um magann á mér. Ég var inni á baðherbergi og var nakin – og á meðan ég man þá var ég risastór. Ég þyngdist um 23 kíló þegar ég var ólétt,“ sagði Louis-Dreyfus í hlaðvarpsviðtali að því fram kemur á vef People

„Og ég stóð þarna og ég missti vatnið, allt í einu kom hjúkrunarfræðingur inn í herbergið og ég sagði að ég hefði misst vatnið. Ég minni á að ég var nakin. „Elaine,“ sagði hún. Það var svo slæmt. Er það ekki hræðilegt?“

Elaine var hlutverkið sem Louis-Dreyfus lék í Seinfeld. Á meðan hjúkrunarfræðingnum datt ekkert annað í hug var leikkonan hins vegar að reyna að koma frumburðinum sínum í heiminn. Í dag á Louis-Dreyfus tvo syni með eiginmanni sínum, Brad Hall. 

Julia Louis-Dreyfus.
Julia Louis-Dreyfus. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert