Íslenska hljómsveitin Soundspell er komin í úrslit sönglagakeppninnar International Songwriting Competition (ISC) með lagið Pound.
Meðlimir Soundspell eru á aldrinum 17 til 18 ára og gáfu út sína fyrstu
breiðskífu, An Ode to the Umbrella, í fyrra. Lagið sem Soundspell á í
keppninni má hlusta á á myspace.com/spellthesound.
Hægt er að kjósa í keppninni á vefsíðunni www.songwritingcompetition.com/winners.