Radiohead til Íslands

Söngvari Radiohead, Thom Yorke
Söngvari Radiohead, Thom Yorke AFP
Hljómsveitin Radiohead verður stærsta atriði Secret Solstice sem fram fer í Laugardalnum í júní. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Hljómsveitin Radiohead verður stærsta atriði Secret Solstice sem fram fer í Laugardalnum í júní. Sveitin spilar þá í fyrsta sinn hér á landi en hún var stofnuð árið 1985 og nýtur gífurlegra vinsælda um heim allan.

Auk Radiohead munu Afrika Bambaata, Róisín Murphy, Kelela og Action Bronson, Deftones, Skream og fjöldi annarra innlendra tónlistarmanna og hljómsveita koma fram en alls hafa 93 nöfn verið tilkynnt og er von á minnst einni tilkynningu í viðbót þar sem fleiri nöfn munu bætast við.

Bætt við klukkan 7:20 þegar aðrir fjölmiðlar fengu senda fréttatilkynningu um Secret Solstice hátíðina.

„Tónlistarhátíðin Secret Solstice sendir frá sér stærstu tilkynningu í sögu hátíðarinnar síðan hún var stofnuð árið 2014. Stærsta tónlistaratriði hátíðarinnar verður breska rokksveitin Radiohead.

Í heildina hafa 32 ný nöfn bæst í raðir tónlistarmanna sem stíga á svið í júní. Meðal þeirra eru Radiohead, Afrika Bambaataa, Róisín Murphy, Kelela og Action Bronson en meðal íslenskra má telja Bang Gang, Mammút, Rix, Faces Of Walls og fleiri.

Nú þegar hafa verið tilkynnt 93 tónlistaratriði með ennþá fleiri á leiðinni sem tilkynnt verða á næstu mánuðum fyrir hátíðina.

Secret Solstice fer fram þriðja árið í röð á milli 17. og 19. júní næstkomandi í Laugardalnum. Hátíðin dregur nafn sitt af sumar sólstöðunum sem eiga sér stað sömu helgi og státar sig af þriggja daga dagsbirtu, gestum hátíðarinnar til mikillar gleði.

Hægt er að nálgast nokkrar týpur af hátíðarmiðum á vefsíðu hátíðarinnar secretsolstice.is. Venjulegur þriggja daga hátíðarpassi er á 24.900ISK, VIP hátíðarpassi á 34.900ISK en fyrir þá alla djörfustu sem vilja fá sem mest úr hátíðinni er hægt að kaupa svokallaða Óðinn Super-VIP miða á 129.900ISK en þeir verða einungis 50 talsins. Hátíðin kynnir einnig til leiks í fyrsta skiptið ‘’Hátíðarpakka Guðanna’’ sem verða einungis þrír talsins en þá er hægt að kaupa á eina og hálfa milljón íslenskra króna og innifalið í pakkanum er aðgangur á öll svæði hátíðarinnar og alla hliðaratburði sem hátíðin kemur til með að skipuleggja.

Tónlistarhátíðin hefur einnig tilkynnt seinustu viðbót hliðaratburða sinna í formi bátapartís sem fer fram eftir miðnætti á Atlantshafi. Plötusnúðar þeyta skífum á meðan gestir fylgjast með sólinni setjast á sjóndeildarhringinn. Aðeins 200 miðar eru í boði fyrir þessa einstöku upplifun sem hátíðargestir geta bætt við hátíðarpassann.

Meðal þeirra hliðaratburða sem þegar hafa verið tilkynntir stendur eflaust upp úr fyrsta partí heimsins sem mun eiga sér stað inni í jökli. Einnig má nefna sundlaugarpartíið sem mun eiga sér stað í elstu náttúrulaug utan Reykjavíkur. Hinsvegar er nánast uppselt á þessa tvo atburði og hvetur því hátíðin þá sem enn eiga eftir að tryggja sér miða að huga að því,“ segir í fréttatilkynningu.

Nöfn þeirra sem koma fram á hátíðinni:

Radiohead [UK]
Action Bronson [US]
Róisín Murphy [IE]
Afrika Bambaataa [US]
Kelela [US]
Matt Tolfrey [UK]
Bang Gang [IS]
Mammút [IS]
Fufanu [IS]
Rix [IS]
Plastic Love [US]
Clovis [US]
Dr.Spock [IS]
MANT [UK]
Bones [CA]
Faces of Walls [IS]
RVK Soundsystem [IS]
DJ Hendrik [IS]
Pink Street Boys [IS]
Halleluwah [IS]
EinarIndra [IS]
Gervisykur [IS]
Valby Bræður [IS]
Mosi Musik [IS]
Dalí [IS]
Stefán Karel [IS]
Auður [IS]
Átrúnaðargoðin [IS]
TRPTYCH [IS]
Kíló [IS]
Rímnaríki [IS]
Since When [US]

SAMTALS: 32 NÖFN


ALLUR LISTI:

Radiohead [UK]
Deftones [US]
Of Monsters And Men [IS]
Jamie Jones [UK]
Skream [UK]
Action Bronson [US]
Róisín Murphy [IE]
Kerri Chandler [US]
Goldie [UK]
Lady Leshurr [UK]
Richy Ahmed [UK]
Visionquest [US]
Edu Imbernon [ES]
Bernhoft [NO]
Afrika Bambaataa [US]
Apollonia [FR]
Santé [DE]
Deetron [CH]
Darius Syrrosian [UK]
Derrick Carter [US]
Kelela [US]
Bang Gang [IS]
Mammút [IS]
Högni Egilsson [IS]
Agent Fresco [IS]
Benoit & Sergio [FR/US]
Lil Louis [US]
Úlfur Úlfur [IS]
AmabAdamA [IS]
Lee Curtiss [US]
Ryan Crosson [US]
Matt Tolfrey [UK]
Shaun Reeves [US]
Kúra [IS]
Fufanu [IS]
Ylja [IS]
Emmsjé Gauti [IS]
Droog [US]
Sidney Charles [DE]
Midland [UK]
wAFF [UK]
Maxxi Soundsystem [UK]
Chez Damier [US]
Marshall Jefferson [US]
Soffía Björg [IS]
Herra Hnetusmjör [IS]
Dr.Spock [IS]
Will Saul [UK]
Youandewan [UK]
Axel Flóvent [IS]
Shades of Reykjavík [IS]
Glowie [IS]
Exos [IS]
Bensol [IS]
Voyeur [UK]
Artwork [UK]
Yamaho [IS]
Rix [IS]
Plastic Love [US]
Clovis [US]
Bones [CA]
MANT [UK]
Þriðja Hæðin [IS]
Faces of Walls [IS]
RVK Soundsystem [IS]
DJ Hendrik [IS]
Pink Street Boys [IS]
Halleluwah [IS]
Lily The Kid [IS]
Vaginaboys [IS]
GKR [IS]
Stephane Ghenacia [FR]
Lily Of The Valley [IS]
EinarIndra [IS]
Gervisykur [IS]
Valby Bræður [IS]
Mosi Musik [IS]
Alvia Islandia [IS]
DJ Kári [IS]
Frímann [IS]
Casanova [IS]
French Toast [UK]
Dalí [IS]
Stefán Karel [IS]
Marc Roberts [UK]
Captain Syrup [IS]
Auður [IS]
Átrúnaðargoðin [IS]
TRPTYCH [IS]
Kíló [IS]
Rímnaríki [IS]
Since When [US]

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Valdabarátta við vin gæti fengið þig til að breyta markmiðum þínum eða framtíðaráformum lítilsháttar. Komdu hugmyndum þínum á framfæri.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Valdabarátta við vin gæti fengið þig til að breyta markmiðum þínum eða framtíðaráformum lítilsháttar. Komdu hugmyndum þínum á framfæri.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Loka