Sendir prinsinum skilaboð þegar hún er drukkin

Cara Delevingne er mikill prakkari.
Cara Delevingne er mikill prakkari. AFP

Leikkonan Margot Robbie greindi frá því á dögunum að vinkona hennar, fyrirsætan og leikkonan Cara Delevingne, sendi Bretaprinsinum sjálfum, Harry, oft á tíðum skilaboð þegar hún er drukkin.

„Við tölum bara um svona venjuleg stelpumál,“ sagði Robbie um vinskap hennar og Delevingne, líkt og fram kemur í frétt Daily Mail.

„Hún segir kannski, ég hef stundað kynlíf í flugvél. Þá segi ég, en ég hef stundað kynlíf á sæþotu. Þá toppar hún mína sögu og segir, ég sendi Harry Bretaprinsi skilaboð þegar ég er full. Þá verð ég að viðurkenna að hún hefur unnið.“

Robbie og Delevingne fara báðar með hlutverk í kvikmyndinni Suicide Squad, sem frumsýnd var nýlega. Kvikmyndin hefur hlotið afleita dóma gagnrýnenda, en hefur þó gengið prýðilega í miðasölu enn sem komið er.

Harry prins sletti eitt sinn úr klaufunum með leikkonunum tveimur. …
Harry prins sletti eitt sinn úr klaufunum með leikkonunum tveimur. Prinsinn sést skarta grænum gleraugum, Margot Robbie er fyrir miðju en Delevingne lengst til hægri. Ljósmynd / skjáskot People
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt vont með að losna við tiltekna hugmynd úr kollinum þessa dagana. Mundu að ekkert er þess virði að missa heilsuna fyrir það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt vont með að losna við tiltekna hugmynd úr kollinum þessa dagana. Mundu að ekkert er þess virði að missa heilsuna fyrir það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir