Jóhanna Guðrún Jónsdóttir segir best að undirbúa sig sem mest til að koma í veg fyrir stress. Jóhanna Guðrún er í dómnefnd í Jólastjörnunni sem sýnd verður í Sjónvarpi Símans í ár. Í þáttunum keppa krakkar 14 ára eða yngri um að fá að syngja með fremsta tónlistarfólki landsins á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar í Hörpu í desember.
„Ég byrjaði að syngja áður en ég byrjaði að tala. Ég var syngjandi bara frá því ég var eins árs og kunni frá þeim aldri fullt af textum og var bara alltaf synjandi og svo kom fyrsta platan út þegar ég níu ára. Fram að því var ég syngjandi í öllum veislum og tróð mér að alls staðar sem ég gat,“ segir Jóhanna Guðrún.
Jóhanna Guðrún segist ekki finna fyrir miklu stressi áður en hún kemur fram þó svo að hún finni fyrir spenningi og fiðringi í maganum. Hún segir að besta leiðin til að komast hjá stressi sé að undirbúa sig ótrúlega vel, æfa sig og kunna sitt upp á tíu.
„Ég var einu sinni að syngja á útisviði og textastatífið fauk á mig í rokinu, það var pínu vandræðalegt,“ segir Jóhanna Guðrún þegar hún er spurð út í eftirminnilegt atvik á sviði. „Svo hef ég einu sinni dottið niður stiga á leiðinni niður af sviðinu. Sem betur fer sá fólk það ekkert voðalega vel. Ég var að syngja fyrir tíu þúsund manns í Svíþjóð, ég var á rosalega háum skóm og var að labba niður af sviðinu, ég gjörsamlega rúllaði niður stigann,“ segir Jóhanna Guðrún en tekur fram að sviðið hafi ekki snúið að áhorfendum.
Hvaða jólalag er í uppáhaldi?
„Ég elska Ef ég nenni eins og allir Íslendingar,“ segir Jóhanna Guðrún en nefnir líka klassísk jólalög eins og Ó helga nótt og Ave Maríu eftir Sigvalda Kaldalóns.
Hvaða hæfileikum þarf jólastjarnan að búa yfir?
„Hún þarf að búa yfir sönghæfileikum fyrst og fremst og líka að hafa útgeislun og maður sjái að viðkomandi hafi gaman af að koma fram fyrir fólk. Þetta er náttúrulega rosalega mikið fyrir barn að gera að syngja fyrir svona marga. Sumir krakkar hafa þetta bara í sér og mér þætti gaman að hafa eitt slíkt eintak
Skráningu í Jólastjörnuna lýkur á miðnætti laugardaginn 20. október. Tólf krakkar verða í kjölfarið boðaðir í prufur og sigurvegarinn verður svo afhjúpaður í lokaþætti Jólastjörnunnar hjá Sjónvarpi Símans.
Aldurstakmark: 14 ára og yngri.
Skilyrði: Allir þátttakendur þurfa leyfi forráðamanna.
Dómnefnd: Björgvin Halldórsson, Selma Björnsdóttir, Svala Björgvinsdóttir og Jóhanna Guðrún Jónsdóttir.
Stjórnandi þáttarins: Gunnar Helgason.
Ef þú vilt taka þátt þá getur þú skráð þig HÉR.