Love Island-stjarnan Samie Elishi gekkst á dögunum undir aðgerð á skjaldkirtli og þarf nú að bíða í tvær til þrjár vikur til að komast að því hvort hún sé með krabbamein í skjaldkirtli.
Elishi opnaði sig um veikindin á Instagram-reikningi sínum. Sagði hún fyrst frá því að hana grunaði að hún gæti verið með krabbamein í apríl síðastliðnum, þegar hún fann hnúð á hálsinum á sér. Fyrr í þessum mánuði þurfti hún svo að fresta aðgerðinni vegna veikinda.
Elishi segir aðgerðina hafa gengið vel og að henni liði vel miðað við aðstæður. Nú þurfi hún að jafna sig en segist hún ætla að halda fylgjendum sínum upplýstum með gang mála.
Elishi segir að aðdáendur þáttanna hafi í raun verið þeir sem tóku fyrst eftir hnúðnum á hálsinum og hafi hún ákveðið að leita til læknis eftir að hafa fengið ábendingu um hann á samfélagsmiðlum.
Hvetur hún fólk til að láta skoða alla hnúða sem það finnur á líkama sínum, sérstaklega í ljósi þess að skjaldkirtilskrabbamein sé nú orðið mun algengara hjá ungu fólki.