„Hvað er ég að gera hérna?“

„Stundum hugsa maður bara: Hvað er ég að gera hérna? Hvað er í gangi?“ segir Álfheiður Erla Guðmundsdóttir sópran þegar hún er spurð út í tilraunakenndar uppsetningar hjá óperuhúsinu Theater Basel í Sviss. Hún hefur verið fastráðin við húsið síðan 2020. 

Álfheiður segir að sá sem stýri óperuhúsinu, Benedikt von Peter, sé þekktur fyrir að ögra áhorfendum og ræður umdeilda leikstjóra til að takast á við uppfærslur hússins. 

Álfheiður í hlutverki í óperunni St. Francois d’Assise árið 2020.
Álfheiður í hlutverki í óperunni St. Francois d’Assise árið 2020. Ljósmynd/Ingo Hoehn

„Maður getur orðað það þannig að stundum þurfi tónlistin að lúta fyrir skrítinni uppfærslu. En þá er það bara stundum þannig. Og það er líka bara ótrúlega gaman að koma áhorfendum á óvart,“ segir hún. 

„Þetta eru oft sýningar sem fólk þekkir en það er gaman að sjá nýja nálgun.“

Álfheiður Erla var gestur Ragnheiðar Birgisdóttur í Dagmálum og rakti þar leið sína út í heim atvinnuóperusöngvara. 

https://www.mbl.is/mogginn/dagmal/menning/240300/

Úr verkinu Die Mühle von Saint Pain sem sett var …
Úr verkinu Die Mühle von Saint Pain sem sett var upp í Theater Basel árið 2021. Ljósmynd/Maurice Korbel
Einstein on the Beach eftir Philip Glass í uppsetningu Theater …
Einstein on the Beach eftir Philip Glass í uppsetningu Theater Basel árið 2022. Ljósmynd/Ingo Hoehn





mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg