Sopranos-stjarna mætt á OnlyFans

Leikkonan átti stórleik í vinsælu mafíuþáttunum, sem margir segja bestu …
Leikkonan átti stórleik í vinsælu mafíuþáttunum, sem margir segja bestu þætti allra tíma. Samsett mynd

Leikkonan Drea de Matteo, sem gerði garðinn frægan í hlutverki sínu sem Adriana La Cerva í mafíuþáttunum Sopranos, hefur nú stofnað aðgang á áskriftarsíðu OnlyFans. De Matteo rukkar áskrifendur sína um 15 bandaríkjadali á mánuði eða því sem samsvarar rétt tæplega tvö þúsundum krónum. 

De Matteo situr nakin á dýnu, íklædd leðurstígvélum og með sígarettu á kynningarmyndinni fyrir áskriftarsíðuna og sést glitta í aðra konu sem liggur á gólfinu við fætur leikkonunnar.

Vinsældir vefsíðunnar OnlyFans fara sívaxandi en hún var stofnuð árið 2016. Margar þekktar stjörnur úr Hollywood-heiminum nýta miðilinn til þess að ná sér í frekari tekjur og athygli með því að selja myndir og myndbönd ásamt klámfengnu efni. Á meðal þeirra sem halda úti áskriftarsíðum á miðlinum eru Denise Richards, Iggy Azalea, Cardi B., Carmen Electra, DJ Khaled, Chris Brown og nú de Matteo. 

Lítið hefur spurst til Sopranos-stjörnunnar síðastliðin ár en hún fór með burðarhlutverk í þáttaröðunum Desperate Housewives, Sons of Anarchy og Joey eftir að hlutverki hennar í Sopranos lauk. 

De Matteo hlaut Emmy-verðlaun fyrir leik sinn í mafíuþáttunum árið 2004.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup