Jenner ræddi um umdeilda kynlífsmyndbandið

Caitlyn Jenner og Kim Kardashian.
Caitlyn Jenner og Kim Kardashian. Samsett mynd

Raunveruleikastjarnan Caitlyn Jenner var gestur í breska morgunþættinum This Morning á dögunum þar sem hún ræddi meðal annars um umdeilda kynlífsmyndband Kim Kardashian og þáverandi kærasta hennar, rapparans Ray J. 

Jenner, sem á þeim tíma var gift móður Kardashian, Kris Jenner, sagðist ekki hafa fylgst með fárinu í kringum myndbandið, en árið 2007 lak kynlífsmyndband af stjúpdóttur hennar á netið og vakti það heimsathygli. Myndbandið var tekið upp fjórum árum áður, 2003. 

„Kris ræddi þetta aldrei við mig“

„Ég kom ekki nálægt þessu,“ sagði Jenner, 73 ára. „Kris ræddi þetta aldrei við mig og ég ræddi þetta aldrei við Kimberly. Ég veit ekkert hvað gerðist né af hverju,“ sagði hún einnig við stjórnendur þáttarins. 

Kynlífsmyndbandinu var lekið einungis mánuðum áður en raunveruleikasería fjölskyldunnar, Keeping Up With the Kardashians var frumsýnd á sjónvarpsstöðinni E!.

Jenner sagðist ekki hafa vitneskju um það hvernig kynlífsmyndbandið komst í dreifingu þegar hún var spurð út það hvort hún teldi þetta hafa verið samstarfsverkefni Kris Jenner og Kardashian. „Ég hef ekki hugmynd. Ég átti aldrei þetta samtal né vildi ég eiga það,“ sagði hún.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg