Þurfa sleðahunda á stemningssvellinu

Bræðurnir og ísdrengirnir Friðrik Dór og Jón Jónssynir.
Bræðurnir og ísdrengirnir Friðrik Dór og Jón Jónssynir. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir

Þáttaröðin IceGuys hefur komið eins og stormsveipur inn í íslenskt sjónvarp. Ferskur andblær í leikna íslenska flóru. Viðtökurnar hafa verið frábærar en annar þátturinn í seríunni kom inn á Sjónvarp Símans síðastliðinn föstudag og sló áhorfsmetið um rúmlega 50%.

„Viðtökurnar hafa farið langt fram úr væntingum. Það er ótrúlega skemmtilegt að heyra hvað þættirnir virðast hitta í mark hjá öllum aldurshópum og við erum himinlifandi með þetta,“ segir Hannes Þór Halldórsson, leikstjóri og einn af framleiðendum þáttanna.

„Þetta er fyrsta leikna serían okkar í framleiðslufyrirtækinu Atakvík og við erum bæði afar stolt af árangrinum og þakklát fyrir áhorfið.“

Friðrik Dór Jónsson tónlistarmaður og Hannes Þór Halldórsson leikstjóri.
Friðrik Dór Jónsson tónlistarmaður og Hannes Þór Halldórsson leikstjóri. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir

Í skýjunum

Fyrsti þáttur af IceGuys setti nýtt áhorfsmet í Sjónvarpi Símans fyrir rúmri viku en annar þáttur bætti um betur og það eru greinilega margir sem bíða spenntir eftir framhaldinu.

„Við í IceGuys erum alveg að pæla í því að fá okkur sleðahunda eftir þessar frábæru viðtökur. Slíkt er stemningssvellið að verða á landinu og við erum auðvitað í skýjunum með þetta allt saman,“ segir Jón Jónsson, einn meðlima IceGuys.

„Í næstu snjókomu biðjum við landsmenn að hugsa til okkar því hvert einasta snjókorn er þakklætisvottur frá okkur ísdrengjunum,“ segir Jón, bróðir eins ástsælasta tónlistarmanns Íslands, Friðriks Dórs.

IceGuys.
IceGuys. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast, þótt allt gangi ekki samkvæmt áætlun. Málið er bara að halda ró sinni, hvað sem á dynur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast, þótt allt gangi ekki samkvæmt áætlun. Málið er bara að halda ró sinni, hvað sem á dynur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav