Patrik gekk tískupallinn í hönnun eftir Birni Snæ

Patrik Atlason gekk tískupallinn á tískusýningu 2. árs nema í …
Patrik Atlason gekk tískupallinn á tískusýningu 2. árs nema í fatahönnun við Listaháskóla Íslands. Samsett mynd

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, betur þekktur sem Prettyboitjokko, gekk tískupallinn á tískusýningu 2. árs nema í fatahönnun við Listaháskóla Íslands á dögunum.

Patrik klæddist fatnaði eftir knattspyrnumanninn Birni Snæ Ingason. Birnir er á öðru ári í fatahönnun við Listaháskóla Íslands, en hann er með skemmtilegan og eftirtektarverðan fatastíl sem endurspeglast í hönnun hans. 

Birnir spilar með Víking og var kjörinn besti leikmaðurinn í Bestu deild karla í fótbolta árið 2023.

Sjálfur spilaði Patrik með Víkingi til ársins 2013 þegar hann færði sig yfir í FH. Víkingur virðist eiga sérstakan stað í hjarta Patriks, en hann samdi nýverið splunkunýtt stuðningsmannalag fyrir liðið. Þá leikur systir Patriks, Nadía Atladóttir, einnig með Víkingi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg