Sögð hafa verið timbruð þegar hún hlóð byssuna

Hannah Gutierrez-Reed, umsjónarmaður skotvopna og skotfæra á tökustað kvikmyndarinnar Rust, …
Hannah Gutierrez-Reed, umsjónarmaður skotvopna og skotfæra á tökustað kvikmyndarinnar Rust, var í gær dæmd í 18 mánaða fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Samsett mynd

Hannah Gutierrez-Reed, umsjónarmaður skotvopna og skotfæra á tökustað kvikmyndarinnar Rust, var í gær dæmd í 18 mánaða fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. 

Kvikmyndastjórinn Halyna Hutchins lést þann 21. október 2021 eftir að skot hljóp úr skammbyssu sem að leikarinn Alec Baldwin miðaði á hana þegar verið var að undirbúa atriði. Hutchins lést samstundis. Joel Souza, leikstjóri kvikmyndarinnar Rust, hlaut minniháttar meiðsl.

Gutierrez-Reed var í kjölfarið ákærð fyrir að hafa hlaðið skammbyssuna með alvöru byssukúlum, en byssan var leikmunur. Gutierrez-Reed er sögð hafa verið timbruð þegar hún hlóð byssuna. 

Baldwin er einnig ákærður fyrir manndráp af gáleysi, en réttað verður yfir leikaranum í júlí. Verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að 18 mánaða fangelsisdóm.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir