Þungarokkssveitin Manowar til Íslands

Manowar á tónleikum.
Manowar á tónleikum. Ljósmynd/Aðsend

Þungarokkshljómsveitin Manowar spilar í Silfurbergi í Hörpu 1. febrúar á næsta ári.

Sveitin hefur bætt Íslandi, Noregi og Svíþjóð við tónleikaferð sína „The Blood of Our Enemies Tour 2025".

„Á túrnum mun þessi goðsagnakennda þungarokkshljómsveit sinna plötunum „Sign of the Hammer" og „Hail to England" sérstaklega ásamt því að flytja uppáhaldsslagara aðdáenda og það í glænýrri sviðsuppsetningu,” segir í tilkynningu.

„Að hitta aftur stríðsmenn okkar, okkar „Manowarriors" í Noregi og Svíþjóð er eins og að fara á ættarmót, en að spila í nýju landi í fyrsta sinn mun búa til nýjar minningar sem eiga eftir að lifa með okkur að eilífu. Við finnum enn kraftinn frá Bólivíu, Kólumbíu, Ekvador og Perú frá því í fyrra og ferð okkar til Svalbarða rétt handan norðurpólsins fyrir fimm árum. Við erum klárir í að rita nöfn okkar í sögubækurnar með bræðrum og systrum okkar á Íslandi og gera þeim kleift að upplifa tónleika sem þau hafa beðið eftir í ansi langan tíma og munu seint gleyma!“ segir Joey De Maio, bassaleikari og stofnmeðlimur Manowar í tilkynningunni.

Miðasalan fer í gang föstudaginn 3. maí kl 10 á harpa.is og tix.is.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg