Hafi upplýst um árásina með þriggja daga fyrirvara

Íran gerir árás á Ísrael | 14. apríl 2024

Hafi upplýst um árásina með þriggja daga fyrirvara

Írönsk stjórnvöld upplýstu Bandaríkjamenn og nágrannalönd sín um hefndarárásina gegn Ísrael með þriggja sólarhringa fyrirvara, að sögn utanríkisráðherra Írans.

Hafi upplýst um árásina með þriggja daga fyrirvara

Íran gerir árás á Ísrael | 14. apríl 2024

Hossein Amir-Abdollahian, utanríkisráðherra Írans, á blaðamannafundi í dag.
Hossein Amir-Abdollahian, utanríkisráðherra Írans, á blaðamannafundi í dag. AFP

Írönsk stjórnvöld upplýstu Bandaríkjamenn og nágrannalönd sín um hefndarárásina gegn Ísrael með þriggja sólarhringa fyrirvara, að sögn utanríkisráðherra Írans.

Írönsk stjórnvöld upplýstu Bandaríkjamenn og nágrannalönd sín um hefndarárásina gegn Ísrael með þriggja sólarhringa fyrirvara, að sögn utanríkisráðherra Írans.

„Við tilkynntum [...] Hvíta húsinu með skilaboðum um að aðgerðin okkar myndi vera takmörkuð, lítil og væri ætlað að refsa Ísraelsku ríkisstjórninni,“ sagði Hossein Amir-Abdollahian, utanríkisráðherra Írans, á blaðamannafundi í dag.

Þetta hafi Íranir gert með 72 klukkustunda fyrirvara.

Íranski her­inn skaut fleiri en 300 árás­ar­drón­um og flug­skeyt­um að Ísra­el í for­dæma­laus­um árás­um í nótt. 12 eru særðir, að sögn tals­manns Ísra­els­hers.

Ísra­els­menn segja að árás­um Írana sé enn ekki lokið, þó Íran­ar segi svo vera. Ísra­les­her náði að miklu leyti að koma í veg fyr­ir árás­ina.

Beina spjótum sínum ekki að Bandaríkjamönnum

Árás­in, sem var um­fangs­mik­il, var hugsuð sem hefnd­araðgerð vegna loft­árás­ar sem var gerð 1. apríl á ræðismanns­skrif­stofu Írans í Dam­askus í Sýr­landi. Íran­ar kenna Ísra­elsmönnum um árás­ina.

„Við tilkynntum bræðrum okkar og vinum á svæðinu, meðal annars löndum sem hýsa bandarískar herstöðvar, að aðgerðin okkar væri aðeins til þess að refsa Ísraelsku ríkisstjórninni,“ sagði hann enn fremur.

„Við leitumst ekki eftir því að beina spjótum okkar að Bandaríkjamönnum eða bandarískum herstöðvum á svæðinu,“ bætti hann við en varaði einnig við því að Íranar gætu ráðist á bandaríska herinnviði sem væru „að verja eða styðja“ Ísrael.

mbl.is