Tveir bandarískir embættismenn hafa staðfest við CBS News að ísraelskt flugskeyti hafi hæft Íran í nótt. Þeir vildu þó ekki veita upplýsingar um umfang eða staðsetningu árásarinnar.

Þá hefur ísraelskur embættismaður staðfest við Washington Post að Ísraelar hafi framið loftárás á Íran. Hann sagði árásina til þess gerða að senda skilaboð um að Ísraelar hefðu getuna til að gera árás innan landamæra ríkisins.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hét því að hefna loftárásar Írans á Ísrael um liðna helgi.
Íranskir fjölmiðlar greindu frá því í nótt að sprengingar hefðu heyrst við flugvöll í Isfahan, borg um miðbik Írans. Þá bárust einnig fregnir um sprengingu í nágrenni Natanz, en þar í nágrenninu hafa Íranar stundað kjarnorkurannsóknir.
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin greindi frá því á miðlinum X að ekkert tjón hefði orðið á kjarnorkuverum í Íran. Rafael Grossi, yfirmaður stofnunarinnar, hvatti til stillingar og ítrekaði að kjarnorkuver ættu aldrei að vera skotmörk í stríðsátökum.
Fréttin verður uppfærð.