„Ég held að það hjálpi mér því mér finnst auðveldast að eiga við spurningar sem snúa að valdi forsetans,“ sagði Baldur Þórhallsson, spurður hvort það hjálpi honum í kosningabaráttunni að vera stjórnmálafræðingur, á forsetafundi Morgunblaðsins og mbl.is á þriðjudag.

Baldur bætti því við að hann hefði fjallað um íslenska stjórnkerfið, alþjóðasamskipti og utanríkisstefnu Íslands á sínum ferli sem prófessor.
Hann sagði á fundinum að það skipti máli að fólk viti hver forsetinn sé og að hann sé nú í þeirri vegferð að kynna sig og sín málefni fyrir þjóðinni.
Á fundum sínum um landið segir Baldur að margir hafi spurt hann um valdsvið forsetans og málskotsréttinn.
„En það sem ég hef lært mest af fundunum um landið er ákall – alveg frá Reykjanesi að Akranesi – eftir að þjóðin upplifi það að hún sé ein heild og að fólki sé ekki mismunað á grundvelli búsetu,“ sagði Baldur.
Hann sagði það vekja athygli sína hvað fólki á landsbyggðinni þætti það vera afskipt.
„Það er í rauninni að biðja mig að kalla eftir því í almennri umræðu að þjóðin upplifi það að hún sé á einu atvinnusvæði, hún sé eitt samgöngusvæði, þjóðin og landið sé eitt heilbrigðisvæði, mennta- og menningarsvæði,“ sagði hann og bætti við að hann muni hafa þetta með sér í farteskinu verði hann kjörinn forseti.