„Forseti, ég ætla að leyfa mér að segja þetta, hans hollusta er bara ein og hún er við þjóðina. Mér finnst stóra spurningin vera, hvað treysti ég mér til að segja um það og þá segi ég, ég treysti mér til að sýna engum hollustu nema þjóðinni í þessu embætti.“

Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir á forsetafundi Morgunblaðsins og mbl.is á Græna hattinum á Akureyri í gærkvöldi.
Stefán Einar Stefánsson sagði þá að þjóðin væri oft klofin í herðar niður og var Katrín ekki lengi að svara.
„Einmitt og þá erfitt að sætta sjónarmið. Það ætti ég nú að vita manna best,“ sagði hún og uppskar mikið lófaklapp frá fundargestum.
Aðeins einn forsetafundur er eftir í hringferðinni en hann verður á fimmtudaginn, 23. maí, á Park Inn by Radisson í Reykjanesbæ með Höllu Tómasdóttur. Sá fundur verður klukkan 19.30 eins og aðrir forsetafundir Morgunblaðsins.
Þegar er búið að halda forsetafundi með Jóni Gnarr, Höllu Hrund Logadóttur, Baldri Þórhallssyni og Katrínu Jakobsdóttur í öllum landsfjórðungum. Iðulega hafa hátt í 200 manns sótt hverja fundi.