Hætt er við auka þingkosningar í Svíþjóð, samkvæmt heimildum Expressen. Forsætisráðherra Svíþjóðar, Stefan Löfven hefur boðað blaðamenn á sinn fund og er hann að hefjast innan skamms.
Samkvæmt frétt Dagens Næringsliv verða fulltrúar bæði ríkisstjórnarflokkanna og bandalags borgaraflokkanna á blaðamannafundinum.
Til stóð að boða til auka þingkosninga þann 22. mars þar sem minnihlutastjórn Löfven náði ekki að fá fjárlagafrumvarp sitt samþykkt á þingi nýverið.
Viðræður hafa staðið yfir milli stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar síðan fyrir jól og hafa flokkarnir nú náð samkomulagi um fjárlög næsta árs.