Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir nóg komið af „skammarlegum“ pólitískum morðum í Rússlandi, að því er fram kemur í frétt á vef BBC. Stjórnarandstæðingurinn Boris Nemtsov er nýjasta dæmið um slíkt en hann var skotinn til bana á götu í Moskvu. Hann var 55 ára. Útför hans fór fram í gær.
Enn er ekki búið að upplýsa morðið og hefur Pútín staðfastlega neitað að hafa átt nokkurn þátt í því.
Frétt mbl.is: Hverjir hafa dáið og hvernig?